Kirkjuritið - 01.12.1963, Síða 8
438
KIH KJURITIÐ
manna til luisakosts Iiefur mótaði nýjan byggingarstíl, sem
bvggir á einfaldara og lireinna formi en áður tíðkaSist. Starli
arkitektsins fylgir |)ó nokkur hætta í byggingarháttum nútím-
ans. Tæknin er að verða skæSur keppinautur sjálfstæðrar list-
sköpunar. Bvggingar, sem þjóna eiga h'kum eða sama tilgangi,
bera orðið um of svip liver af annarri, jafnvel steyptar í mót
viðtekinnar tækniformúlu, þótt böfundar séu margvíslegir.
Ennþá er þessi þróuii ekki komin á bástig, og enn gætir, til
allrar bamingju, sjálfstæðra og persónulegra tilþrifa arkitekts-
ins, sem berst gegn þessum sívaxandi fjötrum tækninnar og
stöðlun liennar. Gagnvart öllu eðli byggingarlistar og starfi
arkitektsins, á tæknin að þjóna en ekki ráða.
„Er ekki starf húsameistara ríkisins fjölþœtt og œriS erfitt?“
Starfið er mjög fjölþætt, og því um leið erfitt. Það nær eink-
um til opinberra bygginga, skóla, sjúkrahúsa, embættisbústaða,
kirkna o. fl. Víðtækl byggingareftirlit og umsjá opinberra bygg-
inga er einnig á vegum embættisins. Fastráðnir starfskraftar
eru ekki í neinu samræmi við verkefnafjöldann, og færist því
mjög í vöxt á síðari árum að fela arkitektum utan stofnunar-
iunar mörg þeirra, eða ráða einstaka til samstarfs um ýms stærri
verkefni. Ennfremur að stofna til samkeppni. Þessi þróun mála
er nauðsynleg og að mínum dómi sjálfsögð, því núox-ðið eigum
við vel menntaðan bóp arkitekta, sem fær er um að takast á
við verkefnin, og eðlilegt að gefa þeim tækifæri til þess.
Það, sem til lielztu erfiöleika mætti telja í starfinu, er land-
lægt fyrirbrigði, sem erfitt liefur revnzt að koma mönnum í
skilning um. Undirbúningstími til úrlausnar verkefnum er yf-
irleitt alltof stuttur. I byggingarmálum okkar þarf það, sem
hugsað er í dag, helzt að vera búið í gær .... svo sterklega sé
til orða tekið. Hér er um mikinn vanda að ræða, sem liin öra
byggingarþróun liefur skapað. Nægilegur undirbúningstími
Iivers meiri liáttar verkefnis er undirstöðuatriði þess, að vel megi
takast, og skila megi binum steini studdu framkvæmdum, sem
erfitt er að breyta eftir að upp eru komnar, kinnroðalaust til
framtíðarinnar.
„HvaSa stórbyggingar hafa valdiS þór mestum áhyggjum eSa
' • Q<<
ancegjur