Kirkjuritið - 01.12.1963, Side 21
Pistlar
Ný viðhorf í æskulýðsvandamálum
Mönnum liggur í augum uppi að ekki er unnt að loka aug-
unum fyrir afbrotum unglinga, frekar en annarra, né láta þau
óátalin. En einberar refsingar gera oft aðeins illt verra. Þess
vegna liafa skilorðsbundnir dómar komið til sögunnar. Verða
þeir oft til bjargar. Nýjar dómsaðferðir og sektarákvæði ryðja
sér til rúms upp á síðkastið. Réttlætiskrafan og uppeldisáhrifin
eru þar samtvinnuð.
Hér skulu tekin þessa tvö dænti.
Jobn Santora, dómari í Jacksonville í Bandaríkjunum, bef-
ur kviðdóm sér til aðstoðar, sem í eiga sæti að minnsta kosti
sex æskumenn. Sinn belmingurinn af bvorum, hvítum og svört-
um oftast nær. Alltaf einliverjar konur. Æskulýðsráð borgar-
innar átti frumkvæðið að þessari skipan, sem gefizt liefur mjög
vel. Dómarinn liefur sannað, að unga fólkið er glöggskyggnt á
gang málanna, finnur livar fiskur liggur undir steini og bvernig
binum ungu sakborningum er innan brjósts. Talið er óbjá-
kvæmilegt að hver gjaldi sinnar glópsku og bæti fvrir bana —
sjálfum sér til mannbóta.
Sökudólgarnir verða því að greiða fébætur, ef þess er þörf,
en einnig ef unnt er að vinna af sér sökina með einhverju, sem
opnar á þeim augun fyrir alvöru og afleiðingum afbrotsins.
Ungur maður olli slysi með ógætilegum akstri í ölæði. Hann
var dæmdur til að vinna fjórar helgar á stórri slvsavarðstofu.
Taka þar á móti stórslösuðum mönnum, sem ekki áttu annars
að vænta en örkumla eða dauða. Hann fékk nýjan skilning og
tók upp breytta lifnaðarliætti.
Karl Holzscliuli dómari í Darmstadt hefur líkar aðferðir,
enda veitir löggjöfin í V.-Þýzkalandi mönnum all óbundnar
liendur við meðferð afbrotaunglinga.