Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1963, Síða 37

Kirkjuritið - 01.12.1963, Síða 37
Gunnar Árnason: Kristnir áhrifamenn Mannræktarstöð Tugdual Gourvés er maður nefndur. Nafnfrægur flugmaður í heimsstyrjöldinni og þjóðfrægur byggingafræðingur og iðju- Iiöldur í Frakklandi. Fæddur til auðs, sm hann ávaxtaði ríku- lega. Hann var kominn yfir fimmtugt, þegar snögg og gjörtæk umskipti urðu í lífi hans. Einkadóttir hans Ker Annick liafði gerzt lijúkrunarkona, þótt hún væri veil fyrir lijarta og lækn- ar réðn henni frá svo erfiðu starfi. Hún vann síðan í þjónustn dr. A. Schweiters í Lambarene. Dag nokkurn bárust föður henn- ar þau tíðindi að liún liefði fengið slag og lægi fyrir dauðanum. Hann flaug samstundis að dánarbeði liennar. „Láttu þetta ekki hryggja þig, pabbi minn“, sagði dóttirin, „ég á gott að hafa fengið að lifa þessi þrjátíu ár hér í heimi. Láttu ekki sorgina gera þig einmana. Leitaðu liuggunar hjá Guði. Hafðu augun lijá þér, þá sérðu alls staðar þörfina, og þú getur gert svo mikið“. 10. ágúst 1950 stóð Tugdual Gourvés yfir gröf dóttur sinnar. Og um þetta leyti urðu tímamót í lífi lians. Hann tók nýja stefnu og liófst handa um allt annað en áður. Hann varð afhuga iðjufyrirtækjum sínum og ákvað að lielga frernur líf sitt með- bræðrum sínum. Taldi það mundi vera Guði þóknanlegra á annan veg en þann, að græða sem inesta peninga. Fyrst datt honum í hug að læra til læknis og feta á þann veg í fótspor dóttur sinnar. En það lá í auguin uppi að hann var orðinn of gamall til að setjast mörg ár að námi. Og nú kom lionum nokkuð nýtt í hug. Homim varð hugsað lil þess, livað allt liefði komið upp í hendurnar á lionum og hann alltaf lifað og látið eins og honum sýndist. Hins vegar vissi liann að ýmsum voru allar bjargir bannaðar, þeir voru inunaðarlausir, félausir eða liöfðu þegar á unga aldri komizt

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.