Kirkjuritið - 01.12.1963, Page 38
KIRKJUItlTIÐ
468
í kast við lögin og brotið brýrnar að baki sér. Og nú spurði
bann sjálfan sig, bvort sér mundi ekki vera skylt að gefa ein-
liverjum slíkum mönnum kost á að ná sér á strik og verða nýtir
borgarar.
Hugsjón lians var sú að koma á fót nýtízku tækniskóla og
rannsóknarstofnun fyrir afbrotaunglinga. Skóla, þar sem inn-
tökuskilyrðin væru þau, að nemandinn liefði brotið eitthvað
af sér eða væri að minnsta kosti vegalaus, en líkur bentu til
að væri fær um að læra ákveðna iðn eða starfa að vissum rann-
sóknum. Og ef liann reyndist vel í þessum skóla skyldi bon-
um annað bvort standa opnar dyr að atbafnalífinu eða honum
verða gjört fært að fara á luiskóla til frekara náms.
Gourvés var sjálfum ljóst bvað tæknin gildir nú á dögum,
og að vísindin skerpa skilning á gildi sannleikans. En bann
vissi líka að mannúðarandi yrði að ríkja í þessari stofnun af
því að andlaus og steinköld vísindi leiða til sálardreps“.
Síðan kvaddi hann sér prest, sálfræðing og uppeldisfræðing
til ráðuneytis við val fyrstu 25 nemendanna. Þess var krafizt
að þeir létu uppi ákveðna löngun til að komast á kjöl og ná
einhverju marki. Og sýndu liæfni til einhvers verks eða sjálf-
stæðra atliugana. Að því búnu fól Gourvés piltana forsjá
traustra og mikilshæfra iðnaðarmanna og lét þá byrja á að
endurreisa niðurnýtt klaustur, sem liann liafði keypt í Bre-
tagne. Hefur það nú verið aukið og skreytt og er búið alls kon-
ar þægindum og fjölda kennslu- og rannsóknarstofum. Skortir
þar ekki Iieldur hin dýrustu tæki lil ótal smíða og tilrauna.
Fengnir voru tíu færir vísindamenn lil kennslu og leiðbein-
inga og sjálfur kennir Gourvés eina námsgreinina. En fyrst og
fremst fyllir liann stofnunina mannúðar- og umbótaanda og
þeim bugsjónaeldi, sem þar liefxir nú brunnið í ellefu ár.
Svo vel befur tekizt til að starf þetta er nú víðfrægt og nýtur
stuðnings frönsku stjórnarinnar. Menn vita og viðurkenna að
þarna liefur mörgum verið bjargað, sem annars liefðu orðið
að rekaldi. Og ýmsir nemandanna hafa reynzt iirvalsmenn
hver á sínu sviði.
Piltarnir skilja það strax frá byrjun, að þarna er ekki verið
að reisa neinar skýjaborgir, beldur er allt byggt á föstum
grunni og við það mið'að, að liver verði sem bezt að manni.
Þeiin er Ijóst, að ef þeir iðka námið af kappi, standa þeir að