Kirkjuritið - 01.12.1963, Qupperneq 45
Frá hinum almenna kirhjufundi
Hinn fjórtándi almenni kirkjufundur var lialdinn í Reykja-
vík og í Skálholti dagana 25.—27. október 1963 Aðalmál fund-
arins var: Kirkjulegur lýðliáskóli í Skálliolti.
Helztu álitsgjörðir fundarins voru þær, sem hér fara á eftir:
1. Um SkálholtsstaS var samþykkt eftirfarandi:
1. Hinn 14. almenni kirkjufundur fagnar því innilega að Skál-
holtsstaður liefur verið afhentur með öllum gögnum og gæð-
um Þjóðkirkju Islands til fullrar eignar og umráða. Fundurinn
leyfir sér að færa þakkir öllum þeim, sem stuðlað hafa að end-
urreisn Skálholtsstaðar, sér í lagi upphafsmanni þess máls, svo
og Alþingi Islendinga og ríkisstjórn fyrir aðgerðir sínar í mál-
inu.
2. Hinn 14. almenni kirkjufundur treystir biskuj)i Islands og
Kirkjuráði til að setja skipulagsskrá fyrir Skálholtsstað sem
sjálfstæða stofnun innan kirkjunnar, svo þegar frá upphafi
verði mörkuð framtíðarstefna um framkvæmdir ]>ar og leitast
á þann liátt við að komast hjá árekstrum og mistökum.
3. Hinn 14. ahnenni kirkjufundur telur það verkefni mest
aðkallandi í Skálholti að þar verði stofnaður kirkjulegur lý&-
háskóli, sem hafi það hlutverk að gefa íslenzkum æskulýð kost
á fræðslu á trúarlegum, siðferðislegum og þjóðernislegum
grundvelli, svo og nauðsynlega þjálfun í leikmannastarfi til
eflingar kirkju Krists á Islandi.
4. Hinn 14. almenni kirkjufundur vottar innilegar þakkir
þeim erlendum vinum Islands og kirkju Krists á Islandi, sem
liafa sæmt Skálholtsstað góðum gjöfuni, og biður þeim blessun-
ar Guðs. Einnig þakkar hann þau tækifæri, sem íslenzkum
ungmennum hafa verið gefin með því að þeim hefur verið gef-
inn kostur á námi í lýðháskólum frændþjóðanna.