Kirkjuritið - 01.12.1963, Side 48
478
KIItKJUIiITIÐ
Kjartan Jóhannesson, orfíanleikari, var ráðinn umferðakenn-
ari frá 1. okt. til 1. júní. Auk hans hafa fjórir söngkennarar
farið á vegum Kirkjukórasambands Islands út um landsbyggð-
ina til að aðstoða organista og leiðbeina kirkjukórum við æf-
ingar. Alls liafa 38 kirkjukórar notið þessarar aðstoðar í sam-
fleitt 45 vikur.
I Barðastrandaprófastsdæmi var organistanámskeið á vegum
sambandsins, 15 nemendur í orgelspili nutu kennslu í tvo mán-
uði lijá Kjartani Jóhannessyni.
Að lokinni skýrslu beindi formaður orðum sínum til Jónasar
Tómassonar, tónskálds, ísafirði, og Jiakkaði honum sérstaklega
fyrir gott samstarf og brennandi áhuga í starfi. Minntist liann
í þessu sambandi á útgáfustarfsemi hans og liversu kirkjukórar
nytu liennar víðsvegar um landið. Bað liann fundarmenn að
rísa úr sætum í þakklætisskyni við Jónas Tómasson.
Gjaldkeri sambandsins, séra Jón Þorvarðsson, lagði fram
endurskoðaða reikninga og voru þeir samjiykktir.
Jónas Tómasson bar fram fyrirspurn varðandi laun formanns,
bvaðan þau væru tekin og bversu liá þau væru. Gjahlkeri svar-
aði og sagði: formaður fær engin laun, stjórnin er ólaunuð.
Tvær tillögur komu fram:
a) Aðalfundur K. I., haldinn í Reykjavík 26. 9. ’63, felur
stjórn sambandsins að sækja til Aljnngis um aukinn fjár-
styrk til starfsemi sinnar, úr kr. 60.000,00 upp í krónur
100.000,00 fyrir árið 1964.
b) Aðalfundur K. I., haldinn í Háskóla íslands 26. 9. ’63,
lieimilar stjórn sambandsins að verja allt að kr. 10.000,00
sem þóknun fyrir störf stjórnarinnar.
Báðar þessar tillögur voru samþykktar samhljóða.
Söngkennslan
Formaður sambandsins, Jón ísleifsson, hafði framsögu. Taldi
hann mikilvægt, að formenn kirkjukórasambandanna hefðu
samband við organistana og kynntu sér allar óskir Jieirra varð-
andi kennslu og annarri aðstoð, sem Kirkjukórasamband ís-
lands getur veitt til stuðnings jieirra starfi.
„Þá þurfum við“, sagði formaður, „að stefna að því, að liver
landsfjórðungur hafi fastráðinn að minnsta kosti einn umferð-
arkennara. Hann ætti að fylgjast með starfi kirkjukóranna,