Kirkjuritið - 01.06.1964, Page 9
KIRK.JUIUTIÐ
247
°g samfélagið við hann eru æðstu staðreyndir andlegs lífs — en
hversu niarga skortir það, að liafa gert þetta að veruleik í lífi
sínu. Áður en sá veruleiki næst inn í líf vort, verður að heyja
niikla haráttu og mikið að vinna, og vér verðum að læra að
kiðja. Hinn andlegi lieimur veitir ekki fjársjóðu sína þeim, sem
aöeins vilja líta við slíku í bili, og þangað duga engar forvitnis-
ferðir. Enginn augnabliksáhugi fær opnað oss leið að þeiin
leyndardómum trúarlífsins. Yér öðlumst eigi hlutdeild í þeiin
fjársjóðum, nema vér keppum eftir því og viljum mikið fyrir
nafa til þess að hljóta liana.
Ef Guð yrði mönnunum sýnilegur og áþreifanlegur í lífinu,
án þess að þeir þráðu það, án þess að þá liungraði og þyrsti eftir
réttlæti og eftir því að sjá Guð, þá gerði lífið engar kröfur til
göfuglyndis manna og staðfestu þeirra í því, sem gott er. Allur
luiin mikli leyndardómur andlegs lífs er liungrið og þorstinn,
Ein vaknandi tilfinning þarfarinnar — nauðsynin á að leita og
Enýja á. Tilverunni er nú einu sinni svo fyrir komið, að það
er eigi unnt að þrýsta neinum til andlegs lífs né neyða andleg-
nni hlutum upp á ncinn. Allt það, sem andans er, er liáð lund-
erni þess, sein leitar þess, og Guð liefur liagað lífinu svo, að
þetta skuli vera svona.
m eru alkunn ummæli eftir þýzkan speking, sem varpa
nokkuru ljósi yfir þelta, þólt þau stundum hafi verið misskil-
'n af kristnum mönnum. Orð hans voru þessi: „Ef Guð biði mér
í annari liendinni óbreytanlegan sannleikann, og í hinm leit
sannleikans, mundi ég segja í allri auðmýkt: ,Drottinn, Iiall þú
sjálfur algjörum sannleikanum, en láttu mér aðeins eftir mátt
°g þrá til að leita hans, þótt ég finni hann aldrei fullkomlega,.“
Lífinu er einmitt þannig fyrir komið, að alls staðar og alltaf
Verður að leita. Spekingurinn gerði því ekki annað með þessum
°rðum en samþykkja sjálfkrafa þau skilyrði, sem fyrir liendi
eri>- Sérhver dýrmæt gjöf lífsins er háð því, að vér leitum
hennar og sækjumst eftir henni, og eins er því farið í andlegum
lieinii. Vanrækið skilyrðin, neitið að leita, að knýja á, að biðja,
°g hráðlega mun hinn andlegi veruleiki liyljast móðu í augum
)éar 0g sýnast óverulegur. Fyrir þá sök er það, að svo margui
ötaðurinn sér ekkert nerna liið ytra í trúarbrögðunum. Þeir
eiga ekki nægilegt siðferðisþrek og eigi nógu mikla staðfestu
L