Kirkjuritið - 01.06.1964, Blaðsíða 39
KIRKJURITIÐ
277
an skólans og leyst af liendi verk silt af einstökum áhuga og
skyldurækni, og ung stúlka Asbjörg J óhannsdóttir, sem réðist
að skólanum á s.l. liausti. Tuttugu ára afmælisins var minnst í
skólanum með veglegri hátíð laugardaginu 30. maí.
Síðari liluta dags fóru bílar að streyma í hlað. Staðurinn var
fánum prýddur og stórt tjald var reist til afnota fyrir lang-
ferðamenn.
Fólk úr öllum áttum og margir um langan veg, eldri og
Vngri nemendur skólans, ungar stúlkur frá síðustu árum og
giftar konur með eiginmönnum sínum, nemendur frá fyrstu
aruni skólans og jafnvel gamlir nemendur frá Staðarfellsskóla.
Það flaug víst í sunira brjóst spurning: Hvernig verður luegt
að koma öllu þessu fólki fvrir í húsakynnunum, þótt rúmgóð
seu, og veita því beina?
Fólk gekk um liiisin og skoðaði sig um. Handavinnusýning,
tnikil að vöxtum og gæðum var uppi. Gamlir nemendur heyrð-
ust fara lofsorðum og aðdáunarorðum um allar framfarirnar,
seni orðið liöfðu frá fyrri tíð í húsakosti og skólahaldi.
Sezt var að borðum til veglegrar matarveizlu. Þar var þétt
setinn bekkur, en engin þrengsli til óþæginda. Á fjórða hudr-
nð manns sat veizluna og matföng óþrjótandi, ljúffengir kosta-
réttir.
Að máltíð lokinni liófst hátíðarsamkoma með guðsþjónustu,
er sóknarpresturinn sr. Gunnar Gíslason, alþm. í Glaumbæ
fhitti. Eftir það voru ræður lialdnar og ávörp flutt. Stjórnaði
sr. Helgi Tryggvason samkvæminu. Forstöðukonan lióf máls.
Eftir það var flutt ávarp frá biskupi Islands. Allir skólanefnd-
armenn töluðu, þeir eru: Jóhann Salberg Guðmundsson sýslu-
nxaður Skagfirðinga, séra Helgi Tryggvason, Miklabæ, og séra
higólfur Ástmarsson hiskupsritari. Frk. Halldóra Eggertsdóttir
námsstjóri liúsmæðraskólanna flutti ræðu. Frú Pála Pálsdóttir,
kennari á Hofsósi flutti kveðju og árnaðaróskir frá sambandi
Skagfirskra kvenfélaga. Frú Rósa B. Blöndals flutti ræðu.
Avörp voru flutt fyrir hönd margra nemendahópa. Margar
SJafir hárust skólanum og fjöldi heillaskeyta. Meðal gjafa var
Ijósbúnaður í handavinnustofu frá frk. Björgu Jóhannesdóttur.
Karlakór austan Héraðsvatna skemmti veizlugestum með kór-