Kirkjuritið - 01.12.1978, Page 23
Sumardagur frá starfsárunum við Háskólann.
því að ég varð að fara á hverju kvöldi
um kl. tíu niður í Landssímahús og
lesa sálm dagsins. Þá var ekki um að
ræða nema beinar útsendingar.
Síðan hafa Passíusálmarnir verið
föstulesning í útvarpinu eins og
kunnugt er og verður svo vonandi
framvegis.
- Er eftirsjá að starfinu við Háskól-
ann?
- Égætlaðialdreiaðtalasvonamik-
ið. En nú ertu búinn að lokka þetta út
úrmérog mál að linni.
Ef ég færi að hleypa að minningum
um árin í Háskólanum gæti það orðið
langurlopi.
Hvort ég hafi saknað starfsins við
Háskólann? Það máttu bóka. Lengi
fannst mér, að það væri ekki annað
en draumur, að ég væri þar ekki við
bundinn, ég hlyti að vakna upp við
það, að þar væri ég aftur sestur í sæti
mitt. en það er nú ekki orðið enn!
Ég á hér lítinn fallegan grip með
áletrun: „Frá guðfræðinemum 2.
apríl 1959“. Þeir kvöddu mig fallega,
blessaðir. Flesta þeirra fékk ég að
vígja. Og marga síðan.
Eg á líka gjafir frá Hallgríms-
söfnuði, sem ég þáði af honum,
þegar ég kvaddi hann sárum huga
1944. Þú kannast a. m. k. við þetta
skrifborð, sem faðir þinn smíðaði
handa söfnuðinum til að gefa mér.
Það er dýrgripur. Handbragð Ólafs
Guðmundssonar segir til sín. Og ég
veit í hvaða hug til mín hann hefur
smíðað þetta. Hann fékk Ágúst Sig-
urmundsson til þess að skera tvær
myndir á skáphurðir borðsins, ann-
261