Kirkjuritið - 01.12.1978, Side 25
°kkar. Vorið 1959, í apríl, fékk ég orð
frá henni, að hana langaði að finna
^9- Ég fór til hennar. Og sem ég sat
r|já henni að þessu sinni og naut þess
®nn að tala við hana, því andlega hafði
nenni í engu förlast, þótt hún væri
heiisuveil líkamlega, sagði hún:
”Ég á erindi við þig núna. Ég þarf að
®e9ja þér dálítið. Hef ekki getað það
yrr- Manstu nokkuð eftir því, að ég
Sa9ði þér einu sinni draum?“
Ég mundi eftir því og lét hana rifja
hann Upp aftur.
"Já, draumurinn var svona. En ég
Sa9ði þér hann ekki alveg allan. Ég
annaðist vel við þig úr draumnum,
Pe9ar ég sá þig. Þú gekkst líka síð-
astur og ég þóttist vita, hvað það tákn-
aði. En þú varst með eitthvað óvenju-
legt á brjóstinu. Það var reyndar gyllt-
ur kross. Mér þótti það skrýtið og var
að hugsa, hvort þetta gæti verið fyrir
því að þú yrðirskammlífur. Að minnsta
kosti kærði ég mig ekki um að vera að
hafa orð á þessu. En nú er mér óhætt
að gera það, því nú er komið fram,
hvað þetta var.“
Kristin trú á forsjón Guðs
Svona var þessi saga.
Ég kann ekki fræðilegar skýringar á
draumum af þessu tagi. Veit ekki til
þess, að aðrir kunni þær heldur. En
jafnvel ómerkilegir draumar geta verið
merkilegir á sinn hátt. Flestir kannast
263