Kirkjuritið - 01.12.1978, Qupperneq 29
°9 jafnvel kenningar, er leitt
hafi til Gyðingahaturs nazista. Hið
sanna er, að hann gerir sér Ijóst, þótt
hann sé barn síns tíma, að allir menn
eru syndarar og eiga yfir sér dóm
^uðs. Gyðingar eru þar ekki einir á
báti. Hann prédikar fyrir Gyðingum,
skírir Gyðinga og býst við afturhvarfi
Þeirra, þótt kenning hans þar um sé
neldur óskýr. Á seinni árum verða
skrif hans hörð og óvægin gegn Gyð-
|n9um. Hann hefur með þeim efa-
'aust haft nokkur áhrif til ills. Þar er
skuggj og þar er synd, sem sárt er að
Þurfa að játa.
Að öðru leyti virðist Lúther ekki
nafa haft áhrif á framvindu mála.
1 lok miðalda fer þó loks örlítið að
r°fatil í þessari sögu. Þáersvo komið
aö laerðir Gyðingar hafa áhrif á
^hstna guðfræðinga, áhuga þeirra á
nsbresku, á Gamla testamentinu og
sögu og guðsdýrkun Gyðinga. Á
öögum rétttrúnaðarins verða þó ekki
nnitalsverðar breytingar, nema að því
eýti að merkja má vaknandi áhuga á
^nstniboði almennt. Það erá 17. öld á
a°gum filosemitismans og píetism-
?ns. sem verulega vorar. - Skyndi-
e9a er líkast því sem ský hafi dregið
ra sólu eða Ijósi sé varpað þangað
sem áður sást varla handaskil.
r|stnir menn gera sér loks Ijóst, að
[neifen hæpið sé, að þeireigi einiröll
yrn"heit Gamla testamentisins. Saga
yðinga var einstæð og ótrúleg.
andflótta, útlægir og ofsóttir höfðu
aeir lifað af ólýsanlegar hörmungar.
ar gat Guð einn verið að verki.
Vernig gat og nokkrum kristnum
anni dulizt, hverju Páll postuli hafði
Paö í 11. kafla Rómverjabréfsins? -
Gyðingar áttu ekki einungis afturhvarf
í vændum, heldur hlaut afturhvarf
þeirra að verða öllum þjóðum jarðar til
blessunar. - Hér er Spener, sem kall-
aður er faðir píetismans, einna frum-
legastur kristinna guðfræðinga á sinni
tíð. Hann virðist telja útvalning Gyð-
ingaenn ífullu gildi.
Og þá er orðið skammt til vor og
þess kristniboðs, sem nú er rekið
meðal Gyðinga. Þar verður einnig að
fara fljótt yfirsögu.
Þegar hin nýja kristniboðsöld, er
svo má nefna, hefst, er athyglisvert, að
það verður nokkuð jafnsnemma, að
stofnuð eru félög til kristniboðs meðal
heiðingja og Gyðinga. Um síðustu
aldamót munu hafa verið starfandi lið-
lega 100 félög, er unnu að kristniboði
meðal Gyðinga. Starfsmenn þeirra
voru um 800. Um árangur eða ávöxt
munu varla vera til óyggjandi skýrslur,
en öllum þeim, sem eitthvað þekkja til,
mun Ijóst, að akurinn meðal Gyðinga
mun einhver hinn harðasti og ófrjó-
asti. - Þar að baki er öll hin ósagða
saga um ofsóknir, fyrirlitningu og
kristniboð, sem var í raun ofbeldi, auk
þeirra örðugleika, sem að öðru leyti
eru á því að Gyðingur hafni trú og
skilningi feðra sinna.
Starf Gyðingakristniboðsfélaganna
beið að sjálfsögðu mikinn hnekki við
heimsstyrjöldina síðari og ofsóknir
þær og fjöldamorð er Gyðingar liðu
þá. Kristnir menn svokallaðir áttu þar
hlut að. En fljótlega eftir styrjöldina
var hafizt handa að nýju, og varla er
ofmælt, að afstaðan til Gyðinga sé nú
meðal þess, sem efst er á baugi víða
um heim.
ísland og íslendingar koma lítt við
267