Kirkjuritið - 01.12.1978, Page 48

Kirkjuritið - 01.12.1978, Page 48
verður ferð Indriða og Einars út um land á vegum Tilraunafélagsins 1908 töluvert blaðamál, eins og áður var rakið. í því tilefni segir Einar Hjörleifsr son m. a. í ísafold (XXXV, 70,14. nóv. 1908) að fjöldi stjórnarsinna, sumir hverjir hinir mætustu menn flokksins, séu innilega hlynntir rannsóknúnum og það sé „ókunnugleika misskiln- ingureinn að haldaað samhugúrinn í máli þessu skiptist eftir stjórnmála- flokkum“. Nú kynnu menn að halda að öldin væri önnur og stjórnmálamenn yfir deiIur af þessu tagi hafni r. En þó mun vera grunnt á glæðurnar. Ekkert dag- blaðanna mundi taka afstöðu móti spíritisma eða ESP (yfirskilvitlegum hæfileikum), vafalaust af þeirri á- stæðu að menn óttast að deilur um eilífðarmálin mundu valda skálmöld og flokkadráttum sem yfirgnæfðu og gengju þvert á allt flokkspólitískt mynztur í landinu. Biskup og andatrú 1 í þessari samantekt verður ekki farið út í hina trúarlegu hlið málefnisins, enda skortir til þess guðfræðilega þekkingu. Þar að auki eru deilur þess efnis ekki svo áberandi fyrstu 2-3 árin, þótt svo hafi síðar orðið og allt til þessa dags. Þar kemur seinna til kasta Haraldar Níelssonar (Það má rekja til áhrifa hans, eins og fyrr var sagt, hve áberandi spíritisminn varð innan íslenzku kirkjunnar, ólíkt því sem annars staðar gerðist, enda 286 margt líkt með kenningum spiritista og aldamótaguðfræðinnar). í „Nýju kirkjublaði", sem hefur göngu sína 1906, eru nokkrar greinar um spírit- isma, og þótt greina megi að ritstjórar séu ekki hrifnir af honum er hann alls ekki fordæmdur. í I. ár. 11. tbl. (15- marz 1906) segir: „Við viljum láta andatrúarmenn vora óáreitta með til- raunir sínar; tíminn leiðir bezt í Ijós hvað úr þeim verður." Báðir ritsjórar „Nýs kirkjublaðs", Jón Helgason, síðar biskup og Þórhallur Bjarnarson síðar biskup, og þó sérstaklega hinn fyrrnefndi, aðhylltust nýju guðfræð- ina ásamt Haraldi Níelssyni, og rná því vera að þeir hafi ekki viljað styggj3 samherja sinn að svo komnu máli. þótt annað yrði upp á teningnum síð- ar. Þó kvartar Fjallkonan (XXIII, 2,12- jan. 1906) undan því að flestir Dóm- kirkjuprédikarar prédiki jafnt og þétt gegn spíritisma, en „Andatrúin er lífsakkeri kristinnar trúar — veitir vissuna fyrir sannleika kristindóms- ins“. Ekki er hér Ijóst við hverja er átt, en sr. Jón Helgason prédikaði í Dóm- kirkjunni frá 1895-1908. Víst er um það, að margir splritistar sögðu sig snemma úr ríkiskirkjunni og gengú ' Fríkirkjuna. Aðventistar, einkum Davíð Öst- lund, veitast mjög að spíritisma á tru- arlegum grundvelli, og er málga9n hans „Frækomið" bókstaflega log' andi af vandlætingu og aðvörunum ' mörg ár, þó aðallega árin 1905 og 1906. Einnig var heimatrúboðið mjög andsnúið spíritistum. En ekki er ætlunin að ræða hér um trúarlegu hliðina, eins og áður var sagt -- er þar ærið verkefni fyrir guðfræðinga

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.