Kirkjuritið - 01.12.1978, Qupperneq 52
Frá tíðindum heima
Norræn stefna og félagsstofnun
Dagana 21.-25. september 1978 var
haldið í Skálholti norrænt mót um
kristna boðun meðal Gyðinga. Til-
drög þeirra tíðinda voru þau helzt, að
13. febrúar 1978 kom saman nokkur
hópur presta og leikmanna í Reykja-
vík og batzt samtökum um að vinna
að stofnun félags til stuðnings krist-
inni boðun meðal Gyðinga. Tilmæli
höfðu þá þegar borizt um það frá for-
manni norrænnar samstarfsnefndar
þeirra félaga á Norðurlöndum, er
vinna að kristniboði meðal Gyðinga,
að íslenzkir áhugamenn gengju til
samstarfsins og reynt yrði að koma á
norrænu móti eða fundi á íslandi um
málefnið.
Hópurinn, er saman kom 13. febrú-
ar, kaus átta manna starfsnefnd til
undirbúnings félagsstofnunar, og
skyldi hún jafnframt athuga, hvort
unnt yrði að efna til fámenns, nor-
ræns móts hér á landi á árinu. Varð
síðan að ráði að halda mót í Skálholti
21.-25. september, en stofnun fé-
lagsins var hins vegar frestað, þar til
að mótinu loknu. í umboði þessarar
sömu starfsnefndar sótti síðan síra
290
Jóhann Hlíðar fundi Norrænu starfs-
nefndarinnar og LEKKJ, sem haldnir
voru í Hollandi í febrúar 1978. Var
hann þar gestur og kostaður af þess-
um erlendu nefndum.
Mótið fór fram í húsakynnum Skál-
holstsskóla og hófst að kvöldi fimmtu-
dags 21. sept. Staðarprestur, sem
jafnframt var formaður hinnar ís*
lenzku undirbúningsnefndar, bauð
fyrst gesti og þátttakendur velkomna,
en því næst setti síra Axel Torm, for'
maður Norrænu samstarfsnefndar-
innar, mótið með nokkrum ávarpsorð-
um. Þá ræddu staðarprestor og rektor
skólans, síra Heimir, nokkuð um stað-
inn, sögu hans og uppbyggingu á síð-
ari árum, Halldór Vilhelmsson °9
Gústaf Jóhannesson fluttu nokkra
söngva úr Biblíuljóðum Dvoraks, og
Guðrún Edda Gunnarsdóttir, jafð'
fræðingur, sýndi og skýrði nokkrar
myndir úr Kverkfjallaför. Loks, að lok'
inni kvöldhressingu, stjórnaði dr. Em'
ar Sigurbjörnsson, prófessor, kvölu'
bænagjörð í kirkjunni.
Næsta morgun, að lokinni morgun'
bæn og morgunverði, hófst dagskra