Kirkjuritið - 01.12.1978, Side 54
Síra Flórens og dr. Sæbo prófessor.
rússneskur Gyðingur að uppruna.
Hún hefur síðan lagt mikla stund á
þjóðlega, hebreska tónlist. Gunnvor
Helander er talin í fremtu röð organ-
leikara í Finnlandi. Hún stundaði nám
við Sibeliusar Akademíuna, undir
handleiðslu Forsbloms, prófessors,
síðar í Danmörku hjá dr. Finn Viderö
og í Hollandi undir leiðsögn Heillers,
prófessors, sem mikið orð fer af. Hún
varsíðan um nokkurárdómorganisti
í Ábo, en gekk í þjónustu Finnska
kristniboðsfélagsins árið 1975.
Að tónleikunum loknum stjórnaði
frú Gun Friedner kvöldvöku um starf
sænsku kirkjunnar meðal Gyðinga.
Síra Magnús Guðjónsson annaðist
enn biblíulestur að morgni síðasta
292
mótsdagsins, mánudags, 25. sept.
Var þá farið yfir 11. kafla Róm-
verjabréfsins. Síðan flutti síra Alpo
Hukka erindi um tengsl heiðingja-
kristniboðs og Gyðingakristniboðs.
Síðdegis hélt svo síra Ole Christian
M. Kvarme erindi um friðþægingar-
dag Gyðinga og kristna friðþæging-
Kvarme starfar í Haifa á vegum
norska Gyðingakristniboðsins.
Um kvöldið var áformað, að haldin
skyldi dönsk kvöldvaka, en á sama
tíma skyldu finnsku gestirnir halda
kirkjutónleika á Selfossi. Varð þá að
ráði, að kvöldvakan skyldi einnig fara
fram í Selfosskirkju að loknum tón-
leikunum. Þar sagði síra Svend Erik
Larsen, aðalframkvæmdastjóri danska
Gyðingakristniboðsfélagsins, frá
starfi þess félags, en fjallaði einnig
um, hvernig rekið væri kristniboð
meðal Gyðinga.
Að lokinni samkomunni í kirkjunni-
buðu prestshjónin á Selfossi öllum
viðstöddum mótsgestum i veglega
kaffiveizlu. Varð af því góð fagn-
aðarstund, er erlendu gestirnir kunnu
ekki sízt að njóta og þakka.
Mótinu var þar með lokið. íslenzkir
þátttakendur í því urðu alls 26, en þeit
erlendu 12. Um tugur gesta kom 1
heimsókn, sumir veitandi af þeim, en
flestir stöldruðu skammt. Mikill ein-
hugur og gleði ríktu meðal þátttak-
enda, og allir töldu þeir sig fara t'1
muna auðugri heim. Guðfræðingar
höfðu jafnvel við orð, að aldrei hefðu
þeir fyrri orðið svo margs vísari á svo
fáum dögum.
Ótalið er þó enn sitthvað, sem fra111