Kirkjuritið - 01.12.1978, Side 55
fór í tenglsum við mót þetta. Sumir
hinna erlendu gesta gátu aðeins haft
hér mjög skamma viðdvöl, en allir
fengu þeir þó nokkuð að ferðast um
landið sunnan- og vestanvert. Daginn
eftir mótslok, fóru þeir, sem enn voru
hér, í Þjórsárdal, að Gullfossi og Geysi
99 síðan um Þingvelli til Reykjavíkur.
A Þingvöllum buðu prófastshjónin,
síra Eiríkur og frú Kristín, til mikillar
veizlu, er kom sér vel, því að ferða-
menn voru orðnir lystugir. Síðan var
gengið til kirkju, og þar sagði síra
Eiríkur frá stað og sögu og kom víða
við, allt frá jarðsköpun. Var mál hans
kyngimagnað, eins og gjarnan vill
verða og hæfði umgjörðinni.
Að kvöldi sama dags héldu finnsku
konurnar enn tónleika í Háteigskirkju.
^ar fiutti síra Axel Torm einnig stutt
svarp. Allir tónleikarnir voru um of illa
sóttir, og fór þar margur á mis við góð-
sr stundir. Svo óheppilega vildi til, að
Þetta kvöld voru einnig tónleikar í
^ómkirkjunni í Reykjavík.
Aður höfðu finnsku gestirnir haldið
sanikomu í Neskirkju ásamt síra Leif
^lörenes. Það var á laugardags-
kvöldi. Síra Flörenes er nú sóknar-
Prestur í Sandefjord í Noregi. Hann
^ar um langt skeið formaður Norska
Gyðingakristniboðsfélagsins. Þegar
pie Hallesby, prófessor, kom til ís-
'ands haustið 1936 ásamt sex norsk-
am stúdentum, sem frægt varð, var
|-eif Flörenes þar í flokki. Hafði hann
Pá nokkra viðdvöl á Akureyri og eign-
aðist þar vini. Varð því að ráði, að
hann faeri norður, enda var hann til
Þess mjög fús. Predikaði hann við
[Tessu í Akureyrarkirkju sunnudag-
lr|n 24. september, og talaði á sam-
komu í kristniboðshúsinu Zíon að
kvöldi sama dags.
Þá predikaði síra Alpo Hukka í Nes-
kirkju sama sunnudag, en í Hall-
grímskirkju predikaði síra Kvarme og
síra Svend Erik Larsen í Selfoss-
kirkju. Áformað hafði verið, að dr.
Fjárstedt predikaði við messu í
Hveragerði, en af því gat ekki orðið
vegna fjarveru sóknarprests.
Mánudaginn, 25. september, hélt
Sæbö, prófessor, svo fyrirlestur sem
gestur í Guðfræðideild Háskóla ís-
lands. Mun þar hafa verið margt á-
heyrenda.
Það er varla ofsagt, að þessa fáu
daga hafi völ verið óvenju mikils og
athyglisverðs fróðleiks og forvitni-
legrar umræðu um hið merkasta mál.
Því er ekki að neita, að nokkrum von-
brigðum olli, að ekki skyldu fleiri
prestar og trúaðir leikmenn bera sig
eftir þessu. En ekki tjóir um slíkt að
fást, og enginn mælikvarði er slíkt
tómlæti á málefnið né atfylgi Guðs.
Þess skal að lokum getið, að 12.
október sl. var stofnað félag í Reykja-
vík, er ber heitið „Samtök um kristna
boðun meðal Gyðinga". Þegar þetta
er ritað eru félagar 24, en þar af er
helmingur prestvígðir menn. Haldnir
eru fundir mánaðarlega, og stefnir
stjórn félagsins að því að kynna mál-
efnið sem víðast í söfnuðum landsins
á næstu mánuðum og árum, ef sam-
vinna tekst við presta og safnaðar-
stjórnir.
G.ÓI.ÓL.
293