Kirkjuritið - 01.12.1978, Side 65
Á synodus árið 1895 skýrir biskup
frá gjörðum nefndarinnar og „las upp
formála eða tillögur hennar um guðs-
Þjónustuna í kirkjunni, almenna
guðsþjónustu, skemmri guðsþjón-
ustu, hátíðaguðsþjónustu og aftan-
söngva á jólanótt og nýársnótt, um
skírnina, almenna barnaskírn,
skemmri skírn, staðfesting skemmri
skírnar, um ferminguna og hjóna-
bandið. Urðu litlar umræður um til-
'ögurnar, með því að biskup kvað
Þaer mundu verða prentaðar og send-
ar prestum, og þá gæfist kostur á að
íhugaþærog ræða.“10
Samþykkt var tillaga biskups um á-
skorun til alþingis um að veita nægi-
'egt fé til þess að gefa út tillögur
oefndarinnar um endurskoðaða
handbók.
Enn var málið sent til umsagnar
Presta og þeir beðnir um að gjöra
9rein fyrir skoðunum sínum á því.
voru þeir hvattir til þess að leita álits
'eikmanna í söfnuðum sínum, sem á-
huga hefðu og þekkingu á málunum.
^argt fer þó öðruvísi en ætlað er.
Ejárveitingar ríkisvaldsins lágu ekki á
'ausu fremur en fyrri daginn Á
synodus sumarið eftir, árið 1896,
skýrði biskup frá orsökum þess, að
fillögur nefndarinnar lægju enn ekki
fyrir prentaðar. Styrkurinn til prent-
enarinnar hafði verið lítilfjörlegur. Þó
k^aðst hann treysta því, að tillögurn-
ar gaetu komið út prentaðar þá um
baustið.11
Það dróst þó f ram á sumar árið 1897
aö fiHögurnar yrðu prentaðar, en á
10) Kirkjublaðið, 1895,9. tbl., bls. 143.
11) Kirkjublaðið, 1895, 9.tbl., bls. 144.
synodus það ár var þeim dreift til
þeirra presta, er þar voru mættir. öðr-
um prestum voru sendar tillögurnar
með fyrstu póstferð. Biskup lagði til-
lögurnar fram á synodus og fylgdi
þeim úr hlaði með nokkrum orðum til
nefndarinnar. Óskaði hann eftir því,
að prestar sendu svör til sín fyrir
miðjan maí næsta ár, svo að málið
gæti orðið sem rækilegast rætt á
synodus það sumar. Því var hreyft af
einum prestanna, að bezt væri að láta
umræðurnar hefjast þegar í stað, því
að frumvarpið væri svo gallað, að á-
stæðulaust væri að senda það út um
landið og leggja það fyrir héraðsfundi.
Þessu var þó ekki sinnt. Þá var nokkuð
rætt um, hvort ástæða væri að leita
álits leikmanna á tillögunum, og virt-
ust flestir telja að þetta mál kæmi
prestum einum við, því að fæstir leik-
menn bæru skyn á málið. Loks var
tveimur mönnum bætt í synodus-
nefndina, sem nú var fimm manna
nefnd, svo skipuð: Hallgrímur Sveins-
son, biskup, Þórhallur Bjarnarson,
lektor, síra Valdimar Briem, síra Jón
Helgason og síra Jens Pálsson. Óneit-
anlega virðist nokkur hiti hafa verið í
umræðum, og í Kirkjublaðinu er lýst
nokkurri furðu á því, að þörf hafi verið
á að fjölga nefndarmönnum um tvo,
þegar starfi nefndarinnar megi heita
lokið og tillögur hennar liggi fyrir á
prenti.12
12) Verði Ijós!" 1897,8. tbl., bls. 116-117.
303