Alþýðublaðið - 15.05.1923, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 15.05.1923, Qupperneq 1
Grefiö út ai Alþýdaflokkamn 1923: Þriðjudagion 15. máí. 107. tölublað. Alinngi. Afsökun sína þykjast þeir víst hafa gert, þingmennirnir, sem fluttu eftir- farandi tillögu til þingsályktunar í sameinuðu þingi: >Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að þó að nú hafi verið af- greidd frá þinginu lög um .und- anþágu frá lögunum um aðflutn- ingsbann á áfengi vegna samn- inga við Spánverja, þá var það gert af knýjandi nauðsyn, en ekki af því, að Alþingi vildi hverfa frá þesaari löggjöf, sem í fyrstu var sett á grundveili þjóð- aratkvæðagreiðslu. < Aðalflutningsmaður tillögunnar var séra Magnús Jónsson háskóla- kennari, 4. þingmaður Reykvík- inga, framkvæmdastjóri bann- lagasvikanna frá í fyrra, en með- flutningsmenn voru þeir Einar Árnason, Eiuar Þorgilsson, Ing- ólrur Bjarnarson, Jakob Möller, Magnús Pétursson, Pétur Ottesen, Sigurður H. Kvaran, Stefán Stefánsson, Sveinn Ólafsson, Þorst. M. Jónsson að ógleymdum hvatamanninum og höfuðpauran- um, Jóni Magnússyni. Magnús Jónsson hafði mælt með tiflögunni, en annars orti enginn á hana, og var hún sam- þykt við svo búið. Ályktun þessi er vitanlega ekki til annars en kisuþvottar á undanþágu-pilt- unum. Þinglausnír fóru fram í gærmorgun kl. 10. Hafði þing þá staðið yfir degi miður en þrjá almanaksmánuði. Verður síðar skýrt nánar frá arðinum af því hér í blaðinu og gerðir upp reikningar þess við alþýðutjá. Erlend símskeyti. Khöfn, 14. maí. Eftirmál Vorovskis. Frá Berlín er símað: Ráð- stjórnin leggur ábyrgðina á morði Vorovskis á herðar sviss- nesku stjórninni og ætiar að ógilda sérleyfi, er Svisslending- um hafa verið veitt I Rússlandi. Bandamenn ráðleggja. Frá Lundúuum er símað: Englendingar og Italir ráðleggja Þjóðverjum að sýna meiri til- hliðrunarsemi í samningunum við Frakka. [Óneitanlega sýnisthefðu legið nær að ráðleggja Frökkum að sýna Þjóðverjum tilhliðrunar- semi.j Lindarpenni fundinn fyrir stuttu; vitjist á Hverfisg. 91 uppi. Nýtt íslenzkt smjör til sölu mjög ódýrt. — Upplýsingar á Baldursgötu 23 (niðri). Reiðhjól I óskilum á Berg- staðastíg 22 (niðri); vitjist strax. 3-4 dnglega handfæramenn vantar á mótorbát á ísafirð't.Talið við Friðrik Oiaisson Lindarg. 18 B, milli 5 — 6 í dag0 %ear\ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ NAVY CUT CIGARETTES Smásöluverð 65 aurar pakkinn. THOMAS BEAR & SONS, LTD., LONDON. 66 „Góöur gestur Revy-brúðir í tveim Iiáttum. Leikið i Iðnó iöstudaginn 18. þ. m. Tvær sýningar: kl. 7 og kl. 9y2. Sæti kr. 2,00; stæði kr. 1,50; barnasæti kr. 1,00. Aðgöngumiðar að báðum sýningum seldir í Iðnó kl. 10—7 á míð- viktidaginn. — Prógröm með öllum vísum úr leiknum fást við inn- ganginn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.