Alþýðublað Hafnarfjarðar - 14.01.1950, Blaðsíða 5
Hafnfirzk æska fylkir sér um Alþýðuflokkinn
Hér er mynd af málfundaflokknum, sem starfaði innan F. U. ]. síðastlið-
inn vetur. Þar fá ungir menn kennslu og æfingu í ræðumennsku og öðl-
ast fræðslu um jafnaðarstefnuna og önnur þjóðfélagsmál. Nú í vetur
starfar annar málfundaflokkur inmin félagsins og er þátttaka góð.
F. U. J.
F. U. J.
Almennur
æskulýðsfundur
Félctg ungra jafnaðarmanna boðar til almenns æsku-
lýðsfundar um bæjarmál og bæjarstjórnarkosningar í Al-
þýðuhúsinu við Strandgötu, mánudaginn 16. jan. kl. 8,30 e. h.
Stuttar ræður flytja eftirtaldir
ungir jafnaðarmenn :
Kristján Hannesson, bifreiðastjóri
Sigurður L. Eiríksson, skrifstofumaður
Jón Guðmundsson, rafvirki
Magnús S. Gíslason, múrari
Egill Egilsson, húsasmiður
Albert Magnússon, verkamaður
Sævar Magnússon, loftskeytamaður
Þorvaldur Þorvaldsson, stud. mag.
Olafur Brandsson, sjómaður
Stefán Gunnlaugsson, formaður F. U. J.
Öllum heimill aðgangur
STJORNIN
Geysilegur vöxtur í F.U.J.
110 nýir félagar
Félag ungra jafnaðannanna í
Hafnarlirði hélt félagsfund síðast-
liðið mánudagskvöld í Alþýðuhús-
inu og var hann fjölmennur og á-
nægjulegur.
Þessi fundur verður vafalaust
talinn einn hinn merkasti í sögu
félagsins og Alþýðuflokksins hér í
Hafnarfirði, því að á honum voru
lesnar upp og samþykktar inntöku-
beiðnir frá 110 æskumönnum og
konum úr Hafnarfirði, sem óskuðu
inngöngu í samtök ungra jafnað-
armanna. Það mun vera eins dæmi
hér í bæ, að svo margir félagar
séu á einum og sama fundi teknir
i æskulýðsfélag, enda er F. U. J. nú
eitt öflugasta æskulýðsfélag í Hafn-
arfirði.
Þessir 110 nýju félagar hafa allir
beiðst inngöngu í félagið seinustu
tvo mánuðina eða eftir síðasta að-
alfund félagsins, sem haldinn var
eftir Alþingiskosningarnar. En á
þeim fundi voru teknir 30
nýir félagar í F. U. J., og hefur
því félagátalan aukizt um 140 síðan
eftir Alþingiskosningar.
A fundinum flutti og Helgi Hann
esson bæjarstjóri ágæta- ræðu um
bæjarmálin og sýndi með ljósum
rökum, hversu mikill eðlismunur
væri á stefnu Alþýðuflokksins og
íhaldsins. En það væri alltaf liöf-
uðmarkmið Alþýðuflokksins að
bæta hag fjöldans, og með það fyrst
og fremst fyrir augum voru m. a.
Bæjarútgerðin og Bæjarbíó stofn-
uð.
Þessi geysilegi vöxtur í F. U. J.
sýnir ljóst, hvert hugur hafnfirzkr-
ar æsku stefnir. Hun mun nú fylkja
sér fastar en nokkru sinni fyrr um
Alþýðuflokkinn og tryggja honum
stóran og glæsilegan sigur 29. jan.
Enda er A-listinn — listi Alþýðu-
flokksins — eini hstinn liér í bæ,
þar sem ungur maður skipar ör-
uggt sæti, en það er Stefán Gunn-
laugsson, formaður F. U. J.
Ungir jafnaðarmenn liafa nú haf-
ið mikla sókn fyrir sigri A-Iistans
og heita á stuðning allra frjáls-
huga og víðsýnna æskumanna til
baráttu og sigurs góðum málstað.
Hverjum
er treystandi!
íhaldsblaðið „Hamar“ er af veik
um mætti að leitast við að „kynna“
frambjóðendur Alþýðuflokksins hér
í bæ í síðasta blaði sínu. Þótt égr
sem þetta rita, teljist til þeirra, sem
ekki hafa mikinn tíma til að taka
sér penna í hönd, þá ætla ég mér
nú að bregða af vananum og leggja
orð í belg. „Hamar“ kynnir m. a.
fyrrverandi skipsfélaga mi'nn, sem
„reynslulausan ungling“, og á þar
við Stefán Gunnlaugsson, sem skip
ar 4. sæti A-listans. Það má vel
vera, að Stefán hafi hvorki dundað
við forstjórn vélsmiðju, strætis-
vagna eða íshúss — eða gefist upp
við búskap —, en slík reynsla telst
ólygnust í augum íhaldsins. En
hinsvegar hefur Stefán öðlast aðra
reynslu. Hann hefur undanfarin
mörg ár jafnframt námi stundað
sjómennsku á togurum, komið sér
vel fyrir dugnað og prúðmennsku,
og kynnst af eigin reynslu högum
og kjörum íslenzkra sjómanna. En
slík störf kallast að dómi íhaldsins
„reynsluleysi“.
Við hafnfirzkir sjómenn treyst-
um Stefáni Gunnlaugssyni betnr
en „forstjórum íhaldsHstans“ að
túlka okkar málstað, málstað hins
vinandi fólks. Allir eitt um A-list-
ann. Bærinn okkar skal aldrei falla
í klær íhalds og Moskvamanna.
T ogarasjómaður.
Kauplð
ódýr t
Góður og nýbarinn
Harðfiskur:
LúðurikHng á kr. 28,00 kg
Harðfiskur (ýsa) — 8,00 —
Riklingur .... - — 10,00 —
Reyktur fiskur - — 4,50 —
Bæjarins bezta verð hjá
REYKHÚSI HAFNARFJARÐAR
A-listinn er listi Alþýðuflokksins