Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.03.1983, Side 1
Ihald og óháðir hundsa undirskriftarsöfnun 12 hundruð
Hafnfirðinga um dagvistarmál:
Minnihlutinn leggur til
að gerð verði áætlun
um uppbyggingu dag-
vistarheimila
- sem unnið verði eftir á næstu árum
Miklar umræöur urðu um dag-
vistarmál á bæjarstjórnarfundi sl.
þriöjudag. Komu þær umræður
m.a. í kjölfar undirskriftalista, sem
bárust frá um 1200 bæjarbúum, þar
sem kvartaö var mjög undan „ó-
fremdarástandi í dagvistarmálum“
í bænum. Þá lögðu fulltrúar minni-
hlutaflokkanna í bæjarstjórn fram
tillögu á bæjarstjórnarfundinum
um þessi mál og var hún svohljóð-
andi.
Bæjarstjórn samþykkir að fela
félagsmálaráði að gera „áætlun um
uppbyggingu dagvistarheimila",
sem miði að því að fullnægja þörf
fyrir dagvistun forskólabarna á á-
kveðnu árabili.
Áætlun þessi þarf að taka mið af
eðlilegri skiptingu milli leikskóla-
og dagheimilisrýma og eðlilegri
dreifingu dagvistarheimila milli
bæjarhluta með það markmið í
huga að öll börn hafi aðgang að
fhaldsmeirihlutinn hefur engan áhuga á því að svara 1200 Hafnfiröingum,
sem kvarta sáran yfir „ófremdarástandi dagvistarmála."
dagvistun við sitt hæfi í sínu heima-
hverfi.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að
þroskaheft börn eigi sem greiðastan
aðgang að dagvistarheimilum bæj-
arins. Áætlun þessi verði send bæj-
arstjórn eigi síðar en 1. júní n.k.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og Óháðra borgara lýstu
andstöðu sinni við þessa tillögu og
var henni að loknum löngum og
ströngum umræðum vísað frá með
atkvæðum meirihlutamanna- og
kvenna.
í umræðum um þessi mál kom
margt fróðlegt fram. Berlega kom í
ljós að meirihlutanum fannst mjög
óverðugt að bæjarbúar skyldu vera
óánægðir með ástand dagvistar-
mála í bænum. Voru málsvarar
meirihlutans almennt mjög ánægð-
ir með sitt framlag í þessum efnum,
enda þótt það liggi fyrir að 300
börn séu á biðlistum um leikskóla-
og dagheimilispláss í bænum. Og
þessi fjöldi segir ekki alla söguna,
því fjölmargir foreldrar hafa ekki
einu sinni fyrir því að skrá börn sín
á biðlista; telja vonlaust að fá inni
fyrir þau.
Töldu meirihlutamenn enga á-
stæðu til þess að gera framtíðará-
ætlun um þessi mál. Sögðu þeir að
félagsmálaráð væri að vinna í mál-
um af þessu tagi og þyrfti bæjar-
stjórn ekki sérstaklega að biðja um
framtíðaráætlun af þessu tagi.
Framhald á 9. síðu
Badmintonfólk á fullu í íþróttahúsinu. Meirihlutinn taldi sig ekki geta
séð af 45 þúsund krónum til að húsiö megi hafa opiö allan ársins hring.
Meirihlutinn felldi tillögu um sumaropnun
íþróttahússins:
Aiþýðuflokkurinn vill að hafn-
firskt íþróttafólk hafi aðgang
að íþróttahúsinu við Strand-
götu allan ársins hring
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar stjórn. Var þessi tillaga til um-
lýsir áhuga sínum á að auka þjón- fjöllunar á bæjarstjórnarfundi
ustuvið íþróttafólk í bænum með þeim, er tók fjárhagsáætlun bæj-
þvi að gefa því kosFá fleiri æf- arins til afgreiðslu. Höfðu flutn-
ingatímum en verið hefur í í- ingsmenn þessarar tillögu aflað
þróttahúsinu við Strandgötu. upplýsinga um það frá iþrótta-
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fulltrúa bæjarins, þessi aukna
samþykkiraðaukþeirratímasem þjónustu til hánda hafnfirsku í-
nú þegar eru nýttir skuli íþrótta- þróttafólki kæmi til með að kosta
húsið við Strandgötu opið t- 45 þúsund krónur aukalega. í
þróttafólki yfir sumarmánuðina. samræmi við þessar upplýsingar
Þá skuli húsið einnig opið til æf-~ fluttu bæjarfulltrúar Alþýðu-
inga á sunnudögum“. flokks, Alþýðubandalags og
Þannig hljóðaði tillaga, sem Framsóknarflokks því breyting-
bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, artillögu við fjárhagsáætlun bæj-
Guðmundur Árni Stefánsson og arins hvað varðar rekstrarkostnað
Hörður Zóphaníasson fluttu á við íþróttahúsið, þar sem gert var
bæjarstjórnarfundi ásamt öðrum ráð fyrir þessari 45 þúsund króna
fulltrúum.minnihlutans í bæjar- Framhald á 9. síðu
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 1983:
Öllum breytingartillögum
minnihlutans hafnað
- Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks og annarra minnihlutaflokka sátu hjá
við heildarafgreiðslu
Á bæjarstjórnarfundi hinn 15.
febrúar síðastliðinn var fjárhags-
áætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar
fyrir árið 1983 afgreidd.
Miklar og harðar umræður og
deilur urðu á fundinum um fjár-
hagsáætlunina á milli minnihluta
og meirihluta bæjarstjórnar og
stóð fundurinn frá klukkan 5 síð-
degis til klukkan hálf sex um morg-
uninn með einu stuttu matarhléi.
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins,
Alþýðubandalagsins og Framsókn-
arflokksins deildu hart á bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins og „Ó-
háðra“ fyrir afturhaldssemi og á-
hugaleysi á byggingu verkamanna-
bústaða í Hafnarfirði, fyrir skeyt-
ingarleysi og afskiptaleysi um
öryggismál Hafnfirðinga og fram-
taks- og fyrirhyggjuleysi í félags-
legri þjónustu við bæjarbúa.
Fjárhagsáætlunin var að lokum
samþykkt með 7 samhljóða at-
kvæðum bæjarstjórnarmeirihlut-
ans, en bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins, Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokksins sátu hjá með
tilvísun í bókun sem bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins, Guðmundur
Árni Stefánsson, gerði, en það kom
í hans hlut að greiða fyrstur at-
kvæði af bæjarfulltrúum minni-
hlutans.
Bókunin var svo hljóðandi:
„Vegna afgreiðslu þeirrar
fjárhagsáætlunar Hafnar-
fjarðarkaupstaðar fyrir árið
1983 sem hér liggur fyrir að af-
greiða, vil ég gera eftirfarandi
grein fyrir atkvæði mínu:
Undanfarin ár hefur meiri-
hluti bæjarstjórnar aldrei beitt
minnihlutann slíkum yfir-
gangi og valdníðslu og hér er
gert við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar, þar sem lítið sem
ekkert tillit hefur verið tekið til
óska og tillagna bæjarfulltrúa
minnihlutans. Eru þetta ný og
öðruvísi vinnubrögð en áður
hafa tíðkast í bæjarráði.
Harmar minnihlutinn þessa
breyttu afstöðu meirihlutans,
sem að vísu er lögleg en að-
standendum til lítillar sæmd-
ar.
Sérstaklega furða ég mig á
hinu mikla áhuga- og skeyt-
ingarleysi um byggingu verka-
mannabústaða í Hafnarfirði á
næstu árum, sem fram hefur
komið hjá meirihluta bæjar-
stjórnar í umfjöllun fjárhags-
áætlunarinnar, þrátt fyrir gíf-
urlegan húsnæðisskort í bæn-
um.
Svipaða sögu er að segja um
skeytingarleysi meirihluta
bæjarstjórnar um ýmis örygg-
ismál Hafnfirðinga, svo sem
tækjabúnað slökkviliðsins og
vaktafyrirkomulag þess.
Það skeytingarleysi er með
þeim hætti, að ég vil ekki bera
nokkra ábyrgð á því. Félagsleg
þjónusta við bæjarbúa er
skorin við neglur og höfð í al-
geru lágmarki.
Tilraunum okkar minni-
hlutamanna til að ná sam-
komulagi hefur verið fálega
tekið og þær hundsaðar.
Með tilliti til alls þessa, get
ég hvorki né vil tekið nokkra
ábyrgð á þeirri fjárhagsáætl-
un, sem nú Iiggur fyrir til sam-
þykktar. Hún er alfarið af-
kvæmi meirihluta bæjar-
stjórnar og á hans ábyrgð.
Þess vegna greiði ég þessari
fjárhagsáætlun ekki atkvæði
mitt, en sit hjá við atkvæða-
greiðsluna“.
Framhald a 9. síðu