Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.03.1983, Page 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.03.1983, Page 1
Ihald og óháðir hundsa undirskriftarsöfnun 12 hundruð Hafnfirðinga um dagvistarmál: Minnihlutinn leggur til að gerð verði áætlun um uppbyggingu dag- vistarheimila - sem unnið verði eftir á næstu árum Miklar umræöur urðu um dag- vistarmál á bæjarstjórnarfundi sl. þriöjudag. Komu þær umræður m.a. í kjölfar undirskriftalista, sem bárust frá um 1200 bæjarbúum, þar sem kvartaö var mjög undan „ó- fremdarástandi í dagvistarmálum“ í bænum. Þá lögðu fulltrúar minni- hlutaflokkanna í bæjarstjórn fram tillögu á bæjarstjórnarfundinum um þessi mál og var hún svohljóð- andi. Bæjarstjórn samþykkir að fela félagsmálaráði að gera „áætlun um uppbyggingu dagvistarheimila", sem miði að því að fullnægja þörf fyrir dagvistun forskólabarna á á- kveðnu árabili. Áætlun þessi þarf að taka mið af eðlilegri skiptingu milli leikskóla- og dagheimilisrýma og eðlilegri dreifingu dagvistarheimila milli bæjarhluta með það markmið í huga að öll börn hafi aðgang að fhaldsmeirihlutinn hefur engan áhuga á því að svara 1200 Hafnfiröingum, sem kvarta sáran yfir „ófremdarástandi dagvistarmála." dagvistun við sitt hæfi í sínu heima- hverfi. Bæjarstjórn leggur áherslu á að þroskaheft börn eigi sem greiðastan aðgang að dagvistarheimilum bæj- arins. Áætlun þessi verði send bæj- arstjórn eigi síðar en 1. júní n.k. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins og Óháðra borgara lýstu andstöðu sinni við þessa tillögu og var henni að loknum löngum og ströngum umræðum vísað frá með atkvæðum meirihlutamanna- og kvenna. í umræðum um þessi mál kom margt fróðlegt fram. Berlega kom í ljós að meirihlutanum fannst mjög óverðugt að bæjarbúar skyldu vera óánægðir með ástand dagvistar- mála í bænum. Voru málsvarar meirihlutans almennt mjög ánægð- ir með sitt framlag í þessum efnum, enda þótt það liggi fyrir að 300 börn séu á biðlistum um leikskóla- og dagheimilispláss í bænum. Og þessi fjöldi segir ekki alla söguna, því fjölmargir foreldrar hafa ekki einu sinni fyrir því að skrá börn sín á biðlista; telja vonlaust að fá inni fyrir þau. Töldu meirihlutamenn enga á- stæðu til þess að gera framtíðará- ætlun um þessi mál. Sögðu þeir að félagsmálaráð væri að vinna í mál- um af þessu tagi og þyrfti bæjar- stjórn ekki sérstaklega að biðja um framtíðaráætlun af þessu tagi. Framhald á 9. síðu Badmintonfólk á fullu í íþróttahúsinu. Meirihlutinn taldi sig ekki geta séð af 45 þúsund krónum til að húsiö megi hafa opiö allan ársins hring. Meirihlutinn felldi tillögu um sumaropnun íþróttahússins: Aiþýðuflokkurinn vill að hafn- firskt íþróttafólk hafi aðgang að íþróttahúsinu við Strand- götu allan ársins hring „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar stjórn. Var þessi tillaga til um- lýsir áhuga sínum á að auka þjón- fjöllunar á bæjarstjórnarfundi ustuvið íþróttafólk í bænum með þeim, er tók fjárhagsáætlun bæj- þvi að gefa því kosFá fleiri æf- arins til afgreiðslu. Höfðu flutn- ingatímum en verið hefur í í- ingsmenn þessarar tillögu aflað þróttahúsinu við Strandgötu. upplýsinga um það frá iþrótta- Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fulltrúa bæjarins, þessi aukna samþykkiraðaukþeirratímasem þjónustu til hánda hafnfirsku í- nú þegar eru nýttir skuli íþrótta- þróttafólki kæmi til með að kosta húsið við Strandgötu opið t- 45 þúsund krónur aukalega. í þróttafólki yfir sumarmánuðina. samræmi við þessar upplýsingar Þá skuli húsið einnig opið til æf-~ fluttu bæjarfulltrúar Alþýðu- inga á sunnudögum“. flokks, Alþýðubandalags og Þannig hljóðaði tillaga, sem Framsóknarflokks því breyting- bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, artillögu við fjárhagsáætlun bæj- Guðmundur Árni Stefánsson og arins hvað varðar rekstrarkostnað Hörður Zóphaníasson fluttu á við íþróttahúsið, þar sem gert var bæjarstjórnarfundi ásamt öðrum ráð fyrir þessari 45 þúsund króna fulltrúum.minnihlutans í bæjar- Framhald á 9. síðu Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 1983: Öllum breytingartillögum minnihlutans hafnað - Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks og annarra minnihlutaflokka sátu hjá við heildarafgreiðslu Á bæjarstjórnarfundi hinn 15. febrúar síðastliðinn var fjárhags- áætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir árið 1983 afgreidd. Miklar og harðar umræður og deilur urðu á fundinum um fjár- hagsáætlunina á milli minnihluta og meirihluta bæjarstjórnar og stóð fundurinn frá klukkan 5 síð- degis til klukkan hálf sex um morg- uninn með einu stuttu matarhléi. Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Framsókn- arflokksins deildu hart á bæjarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins og „Ó- háðra“ fyrir afturhaldssemi og á- hugaleysi á byggingu verkamanna- bústaða í Hafnarfirði, fyrir skeyt- ingarleysi og afskiptaleysi um öryggismál Hafnfirðinga og fram- taks- og fyrirhyggjuleysi í félags- legri þjónustu við bæjarbúa. Fjárhagsáætlunin var að lokum samþykkt með 7 samhljóða at- kvæðum bæjarstjórnarmeirihlut- ans, en bæjarfulltrúar Alþýðu- flokksins, Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins sátu hjá með tilvísun í bókun sem bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins, Guðmundur Árni Stefánsson, gerði, en það kom í hans hlut að greiða fyrstur at- kvæði af bæjarfulltrúum minni- hlutans. Bókunin var svo hljóðandi: „Vegna afgreiðslu þeirrar fjárhagsáætlunar Hafnar- fjarðarkaupstaðar fyrir árið 1983 sem hér liggur fyrir að af- greiða, vil ég gera eftirfarandi grein fyrir atkvæði mínu: Undanfarin ár hefur meiri- hluti bæjarstjórnar aldrei beitt minnihlutann slíkum yfir- gangi og valdníðslu og hér er gert við afgreiðslu fjárhags- áætlunar, þar sem lítið sem ekkert tillit hefur verið tekið til óska og tillagna bæjarfulltrúa minnihlutans. Eru þetta ný og öðruvísi vinnubrögð en áður hafa tíðkast í bæjarráði. Harmar minnihlutinn þessa breyttu afstöðu meirihlutans, sem að vísu er lögleg en að- standendum til lítillar sæmd- ar. Sérstaklega furða ég mig á hinu mikla áhuga- og skeyt- ingarleysi um byggingu verka- mannabústaða í Hafnarfirði á næstu árum, sem fram hefur komið hjá meirihluta bæjar- stjórnar í umfjöllun fjárhags- áætlunarinnar, þrátt fyrir gíf- urlegan húsnæðisskort í bæn- um. Svipaða sögu er að segja um skeytingarleysi meirihluta bæjarstjórnar um ýmis örygg- ismál Hafnfirðinga, svo sem tækjabúnað slökkviliðsins og vaktafyrirkomulag þess. Það skeytingarleysi er með þeim hætti, að ég vil ekki bera nokkra ábyrgð á því. Félagsleg þjónusta við bæjarbúa er skorin við neglur og höfð í al- geru lágmarki. Tilraunum okkar minni- hlutamanna til að ná sam- komulagi hefur verið fálega tekið og þær hundsaðar. Með tilliti til alls þessa, get ég hvorki né vil tekið nokkra ábyrgð á þeirri fjárhagsáætl- un, sem nú Iiggur fyrir til sam- þykktar. Hún er alfarið af- kvæmi meirihluta bæjar- stjórnar og á hans ábyrgð. Þess vegna greiði ég þessari fjárhagsáætlun ekki atkvæði mitt, en sit hjá við atkvæða- greiðsluna“. Framhald a 9. síðu

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.