Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.03.1983, Blaðsíða 2
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Laugardagur 19. mars 1983
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur verður haldinn 22. mars
1983 kl. 20.30 að Hótel Esju 2. hæð.
Dagskrá samkvæmt félagslögum
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur .
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfar-
andi:
RARIK—83005. Aflrofabúnaður fyrir aðveitustöð
Flúðir.
Opnunardagur: Þriðjudagur 12. apríl 1983 kl. 14.00.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma,
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudeginum 17. mars 1983 og kosta kr. 100^ hvert
eintak.
Reykjavík 15.03 1983
Rafmagnsveitur ríkisins
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi Keflavíkur
flugvallar fyrir árið 1983.
Aöalskoöun bifreiöa fer fram í húsakynnum bifreiöa-
eftirlitsins að Iðavöllum 4, Keflavík eftirtalda daga frá
kl. 08-12.00 og 13.00-16.00.
Mánudaginn 21. mars j-1 — J-100
Þriðjudaginn 22. mars j-101 — J-200
Miðvikudaginn 23. mars J201 — J-300
Fimmtudaginn 24. mars J-301 — J-400
Föstudaginn 25. mars J-401 — og yfir.
Við aðalskoðun skal framvísa kvittun fyrir greiðslu bif-
reiðagjalda, og gildri ábyrgðartryggingu. Ennfremur
skulu bifreiðarnar hafa hlotið Ijósastillingu eftir 1.
ágúst 1982.
Vanræki einhver að færa bifreið til skoðunar á aug-
lýstum tíma, veröur hann látinn sæta ábyrgð að lög-
um og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar
næst.
Lögreglustjórinn
á Keflavíkurflugvelli,
10. mars 1983.
Svend Aage Malmberg
fulltrúi Alþýðuflokksins í
Náttúruverndarnefnd.
fjarðar hefur því í samráði við Nátt-
úruverndarráð lagt til að Hamarinn
verði friðlýstur sem náttúruvætti.
Lagt er til mörk friðiýsta svæðis-
ins verði Hringbrautin, lóðamörk
við Öldugötu, Lækjargötu og
Brekkugötu og tröppur og vegur frá
Flensborgarskóla frá Brekkugötu
að sjoppu á horni Hringbrautar og
Selvogsgötu. Tryggja skal að að-
komuleiðir að Hamarssvæðinu
haldist.
Reglur um svæðið (tillögur):
1. Varðveita skal jarðmyndanir og
lífríki svæðisins í núverandi
mynd. Hvers konar mannvirkja-
gerð eða jarðrask sem breytt
getur útliti eða eðli svæðisins er
óheimil, nema til komi sérstakt
leyfi Náttúruverndarráðs.
2. Gangandi fólki er heimil för um
svæðið, enda sé góðrar um-
Svend flage Malmberg:
Friðlýsing Hamarsins
Hamarinn í Hafnarfirði er frið-
helgur í huga Hafnfirðinga. í nátt-
úruminjaskrá Náttúruverndarráðs
segir:
„Hamarinn ofan við miðbæ
Hafnarfjarðar er svipmikil kletta-
borg í miðjum bæ með fallegu út-
sýni, sem ber að friðlýsa sem nátt-
úruvætti“.
Náttúruvætti eru náttúruminjar
sem varðveita skal vegna fræðilegs
gildis þeirra og vegna þess að þær
eru fagrar og sérkennilegar.
Örn Arnarson orti kvæði um
Hamarinn og segir þar m.a.:
Hamarinn í Hafnarfirði
horfir yfir þétta byggð,
fólk að starfi, fley, sem plægja
fjarðardjúpin, logni skyggð.
Hamarinn á sína sögu,
sem er skráð í klett og bjarg.
Stóð hann af sér storm og skruggu,
strauma hafs og jökulfarg.
Formleg friðlýsing hefur ekki
farið fram á Hamrinum og óhöpp
geta gerst eins og dæmin sanna.
Náttúruverndarnefnd Hafnar-
gengni gætt. Þá er Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar heimilt að höfðu
samráði við náttúruverndar-
■iefnd og skipulagsnefnd bæjar-
ins að láta planta trjágróðri,
leggja gangstíga og setja upp
bekki og annan búnað í þágu
útivistar á svæðinu.
3. Hvers konar losun jarðefna,
rusls eða sorps er óheimil á
svæðinu.
Varðandi annan lið, þá hefur
Steinþór Einarsson garðyrkjumað-
ur Hafnarfjarðar gert ákveðnar til-
lögur þar um í samráði við náttúru-
verndarnefnd Hafnarfjarðar, en
Steinþór er jafnframt formaður
nefndarinnar. Aðrir nefndarmenn
eru Einar Sigurjónsson og Svend
Aage Malmberg.
Náttúruverndarnefnd Hafnar-
fjarðar væntir þess að bæjaryfir-
völd í Hafnarfirði samþykki frið-
lýsingu Hamarsins í vor, svo að
nota megi sumarið til nokkurra
framkvæmda.
Að lokum skal svo aftur vitnað i
Örn Arnarson:
Hamarinn í Hafnarfirði
horfir fram mót nýrri öld.
Hann mun sjá að framtíð færir
fegra líf og betri völd.
Þögult tákn um þroska lýösins:
þar er hæð, sem fyrr var lægð,
jökulhefluð hamrasteypa,
hafi sorfin, stormi fægð.
Baráttunni fyrir fegurra lífi og
betri völdum heldur áfram, þótt þar
sé hæð sem fyrr var lægð. Jafnað-
armenn, treystum þá baráttu.
Svend Aage Malmberg
Þeir eru lánsamír
sem skípta við
SPARISJÓÐINN
5PARI5JÓÐUR
HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 8—10 - © 54000
REYKJAVÍKURVEGI 66 - © 51515