Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.03.1983, Qupperneq 4

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.03.1983, Qupperneq 4
6 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR Laugardagur 19. mars 1983 Alþýðublað Hafnarfjarðar Útgefandi: Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði Ritstj. og ábm.: Þorvaldur Jón Viktorsson Form. blaðstjórnar: Grétar Þorleifsson Dreifing: Gylfi Ingvarsson, S. 50634 Auglýsingar: Margrét Vilbergsdóttir, S. 54727 Ljósmyndir: Guðmundur Ragnarsson Setning og umbrot: Alprent Prentun: Blaðaprent BLÓMABÚÐIN BURKNI Allt til ferminga: KERTI — STYTTUR — SERVIETTUR BLÓM og BLÓMA SKRE YTINGA R Opið öll kvöld til kl. 9 Ath... Það bjóða engir aðrir eins fjölbreytta að- gangsmöguleika og við. Athugið að 12 tíma aðgangskort er afsláttar- kort og er ekki bundið við tíma (það gildir á meðan eitthvað er eftir á því). Þrátt fyrir 14% kaup- hækkun 1. mars hefur aögangsverð ekki hækkað hjá okkur. Kynntu þér málið. — Sjáumst — Síminn er: 54845 Þrekmiðstöðin Dalshrauni 4 — sími 54845 Konur athugið Snyrtinámskeið — Snyrtimiðstöðin ANDORRA Ath. nýjung 1. Kvöld — eingöngu andlistsforöun Mánudaga-Miöviku- daga — verö kr. 200r 4urra kvölda námskeiöin — þriðju- daga-fimmtudaga verö kr. 500r Upplýsingar í síma 52841 (Þórunn) 51920 (Valgerður). Meirihlutinn seldi hlutabréf bæjarins í Lýsi og Mjöl á gjafaprís: Hluthafar neyttu for- kaupsréttar á hlutabréfum bæjarins þegar til kom Ymislegt hefur gerst i málefn- um fiskmjölsvtrksmiðjunnar Lýsi og Mjöl síðustu vikur og mánuði. S.l. sumar varð verksmiðjan að haetta starfrækslu vegna rekstrar- örðugleika og hefur nánast öll starfsemi fyrírtækisins legið niðri frá því þá, þar til verksmiðjan fór í gang fyrir nokkrum vikum. Stjórn Lýsi og Mjöl fór þess á leit við bæjaryfirvöld að þau bak- tryggðu einnar milljón króna lán, sem stjómin hugðist taka ti! að koma starfseminni í gang á nýjan leik s.l. haust. Bæjarfulltrúar minnihlutaflokkanna lögðu til að bærinn veitti þessa bakábyrgð, en meirihlutaflokkarnir neituðu. Þeir gengu svoskrefinu lengra og ákváðu að bjóða hlutabréf bæjar- ins og Bæjarútgerðarinnar til .sölu. Nokkur tilboð bárust í hluta- bréf bæjarins. Öll áttu þau sam- merkt að vera undir því verð- mætamati, sem óháður aðili hafði komist að niðurstöðu um, er hann gerði úttekt á verðmætum fyrirtækisins að ósk bæjaryfir- valda. Meirihluti bæjarstjórnar gerði síðan tillögu um, að Skipafélag- inu Víkur, Saltsölunni h.f. og fleirum yrði seldur hiutur bæjar- sjóðs og heimingur hlutabréfa Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Þessi bréf, samtals 51% hluta- bréfa fyrirtækisins, átti kaupandi að fá keypt fyrir 15 falt nafnverð, eða rúmar 900 þúsund krónur. I ofanálag átti síðan kaupandi að fá greiðslufrest á ýmsum skuldum fyrirtækisins við bæjarsjóð og fyrirtæki í eigu bæjarins. Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks- ins lýstu andstöðu sinni við þessa tillögu. Þessi tillaga meirihlutans var samþykkt með atkvæðum bæjarfulltrúa Óháðra og Sjálf- stæðisflokksins, gegn atkvæðum minnihlutaflokkanna. Lögum samkvæmt varð þó að bjóða öðrum hluthöfum for- kaupsrétt að hlutabréfum bæjar- ins og brá þá svo við, að nokkrir þeirra vildu notfæra sér rétt sinn. mælisvika. Fyrri hlutinn sem hægur og sígandi aðdragandi að sjálfum aðal hátíðahöldunum, með opnunum sýninga og ein- hverjum listviðburðum e.t.v. tón- leikum, kvikmynda- og/eða leik- sýningum. Miðpunkturinn er svo sjálfur afmælisdagurinn með setningu vinabæjamóts og hátíð- arfundi bæjarstjórnar um kvöld- ið. Seinni hluti vikunnar helgast svo aðallega vinabæjamótinu, en ýmsar daglegar uppákomur eru Jóna Ósk Guójónsdóttir Hafnarfjarðarkaupstaður 75 ára - Eftir Jónu Ósk Guðjónsdóttur fulltrúa Alþýðuflokksins í afmælisnefndinni 1. júní í sumar höldum við Hafnfirðingar upp á 75 ára kaup- staðarafmæli bæjarins. Ætlunin er, að það verði gert með pomp og pragt. í tilefni þess var skipuð nefnd, sem sjá á um hátíðarhöld- in og jafnframt um vinabæjamót, sem haldið verður í tengslum við afmælið. Til upprifjunar má geta þess að vinabæirnir eru: Fredriksberg í Danmörku, Bærum í Noregi, Uppsalir í Svíþjóð og Hameen- linna (Tavastehus) í Finnlandi. Nýverið bættist Kekertarssuat- isiait (Fiskenæs) á Grænlandi í. hópinn, en óvíst er með þátttöku þaðan í mótinu. Afmælisnefndin kom saman í byrjun vetrar og hefur verið iðin og atorkustöm, en nefndina skipa Guðjón Tómasson, Þórdís Á. Albertsson, Sjöfn Magnúsdóttir, Jóna Ósk Guðjónsdóttir og Leó E. Löwe. Þeim til trausts og halds er auk þess Inger Helgason frá Norræna félaginu. Strax upp úr áramótum voru lögð fram drög að dagskrá, sem bæjarráð hefur samþykkt. Er nú unnið að frekari úrvinnslu sam- kvæmt þeim ramma. Vikan 28. maí -4. júní er hugsuð sem af- þó fyrirhugaðar alla vikuna, sem bæjarbúum gefst einnig kostur á að taka þátt í, t.d. er ætlunin að bjóða upp á skoðunarferðir um bæinn með leiðsögn fróðra manna. Á laugardeginum verður svo gleðinni gefinn laus taumur- inn með allsherjar útiskemmtun og tilheyrandi dansleikjahaldi. Draumurinn er að sem flestir verði virkir þátttakendur en ekki aðeins hlutlausir áhorfendur. Haft hefur verið samband við alla skóla bæjarins og hafa undirtekt- ir verið mjög jákvæðar. Útvarp Hafnarfjarðar verður starfrækt þessa viku og hefur Halldór Árni Sveinsson tekið að sér útvarps- stjórn. Lumi einhver á góðum hugmyndum, sem að gagni mættu koma er allt slíkt vel þegið. Þá hefur merki afmælisins verið ákveðið, en það teiknaði Hilmar Sigurðsson hjá auglýsingastofunni Argus, en Hilmar er Hafnfirðingur enda verður þetta eins hafnfirsk hátíð og unnt. Nýverið var líka gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra, en það hlutverk taka þær systur Lovísa og Þórunn Christensen að sér og væntir nefndin sér góðs af samstarfinu við þær. Að lokum verum samtaka um að halda veglega afmælishátíð- — verum virkir þátttakendur- — glæðum bæinn meira lífi — og síðast en ekki síst snyrt- um og fegrum í kringum okkur, sýnum i reynd að við búum í fallegasta bæ á landinu. Talsvert hefur gengið á í málefnum Lysi og Mjöl á síðustu mánuðum. Niðurstaða málsins varð því sú, að það voru, Jón Gíslason s.f., Fiskaklettur h.f., Frost h.f., Illugi h.f., Bernharð Petersen h.f., Ás- geir Stefánsson db., og Adolf Björnsson sem keyptu hlutabréf bæjarins og'BÚH. Gengið var frá þeirri sölu á síðasta bæjarstjórn- arfundi. Á þeim fundi áréttuðu bæjar- fulltrúar minnihlutaflokkanna afstöðu sína. Þeir sátu hjá við af- greiðsiu málsins með eftirfarandi bókun: Ég vísa til bókunar minn- ar á bæjarstjórnarfundi 1. febrú- ar 1983 (á þeim fundi gerðu bæj- arfulltrúar minnihlutans grein fyrir afstöðu sinni til málefna Lýsi og Mjöl með ítarlegri bókun — innsk. Albl.) er greidd voru at- kvæði um drög að samkomulagi um sölu á hlutabréfum bæjar- sjóðs og BÚH í Lýsi og Mjöl h.f. til Skipafélagsins Víkur ov' fl. Ég tel til bóta að mál hafa nú skipast á þann veg að núverandi hluthafar i fyrirtækinu vilja neyta forkaupsréttar síns og kaupa fyrr- nefnd hlutabréf. Það ætti að tryggja að áfram verði fiskimjöls- framleiðsla í Hafnarfirði. Enn stendur þó eftir að hluta- bréfin eru seld á of lágu verði og forsendur sem brostnar eru vegna bættrar stöðu þessarar atvinnu- greinar. Er hags bæjarsjóðs því ekki gætt sem skyldi. Ég sit því hjá við þessa at- kvæðagreiðslu". Fulltrúar meirihlutans sam- þykktu hins vegar söluna og stað- festu. Tæpar 58 milljónir I götur, holræsl og umferðarmál Það er margt athyglisvert að finna í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1983. Þar má m.a. sjá að áætlaðar tekjur af gatnagerðargjöldum þessa árs eru 24 milljónir 750 þús- und krónur. Tekjur af heimæðargjöldum eru áætlaðar 190 þúsund krónur. Þessar upphæðir koma frá þeim sem standa í byggingum hér í Firð- inum. Hætt er við að þessi gjöld verði þeim mörgum erfiður biti í hálsi. En alls er gert ráð fyrir að verja 57.778.000 krónum í liðinn götur, holræsi og umferðarmál. 168 umsóknir um 83 ióðir í Set- bergshverfi Fyrir nokkru voru auglýstar 83 lóðir í Setbergi, þar af 63 einbýlis- húsalóðir. Umsóknarfrestur er nú liðinn og bárust 168 umsóknir um þessar lóðir. Umsóknirnar skiptast þannig: Umsækjendur um einbýlislóð- ir, sem búsettir eru í Hafnarfirði, voru 114, auk 43 umsækjenda, sem búsettir eru utan Hafnar- fjarðar. Um lóð undir parhús sóttu 5 aðilar búsettir í Hafnarfirði og þrír utan Hafnarfjarðar. Þrír umsækjendur sóttu um raðhúsalóð, allir búsettir í Hafn- arfirði.

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.