Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.04.1983, Blaðsíða 1
Gleðilegt sumar
Þetta er okkar fólk, góðír
fulltrúar jafnaðarstefnunnar
Þetta er okkar fólk, fjórir efstu menn á A-listanum í Reykjaneskjördæmi. Þetta eru góðir fulltrúar
jafnaðarstefnunnar og sóma sér vel á Albingi.
Kjartan er formaður Alþýðuflokksins og er þekktur fyrir skýra hugsun, rökvísi og réttlætiskennd og
stefnufesta hans og farsæld í störfum kom vel í ljós þann stutta tíma sem hann var sjávarútvegsráðherra.
Karl Steinar hefur í mörg ár verið forystumaður verkafólks og sjómanna, verið kennari, sjómaður og
alþingismaður. Hann þekkir því vel og skilur hvar skórinn kreppir í kjörum og lífi þessa fólks, bæði mín
og þín. Hann er góður fulltrúi verkalýðshreyfingarinnar á Alþingi og um leið fólksins í Reykjaneskjör-
dæmi.
Kristín H. hefur alls staðar getið sér gott orð fyrir dugnað og hæfileika þar sem hún hefur starfað,
hvort heldur sem það hefur verið við kennslustörf, húsmóðurstörf, störf í þágu BSRB, námsefnissamn-
ingu eða baráttu fyrir hugsjónum sínum og hugðarefnum í ræðu og riti. Kristin H. er glæsilegur fulltrúi
þeirra kvenna, sem hafa tekið þátt í jafnréttis- og kjarabaráttu undanfarinna ára.
Hauður Helga er ung og dugmikil kona, sem hetur vaxið i öllum þeim störfum sem henni hafa verið
falin. Hún þekkir kjör einstæðra mæðra af eigin raun og sama er að segja um líf og vandamál unga fólks-
ins. Það er engin tilviljun að Hauður Helga hefur gert jafnaðarstefnuna að lífsviðhorfi sínu. Hún er
ágætur fulltrúi unga fólksins og á áreiðanlega eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Hauður
Helga er fulltrúi unga fólksins og framtíðarinnar á A-listanum í Reykjaneskjördæmi.
Við höfum góðan málstað. Við höfum góða, skýrt markaða stefnu. Við viljum breyta til um stjórnar-
hætti. Við viljum styðja réttlætið og berjast gegn ranglætinu. Við viljum þjóðfélag, sem einkennist af
réttlætiskennd og mannhelgi. Við viljum að öryggi heimila í landinu sé í heiðri haft. Og við eigum góða
fulltrúa til að kjósa á Alþing íslendinga, til þess að koma þessum málum fram.
Takmarkið er:
Kjartan kjördæmakjörinn og Karl Steinar uppbótarþingmaður.
Að þessu vinnum við. Þá verða þær Kristín H. og Hauður Helga varaþingmenn.
Stöndum fast saman um Alþýðuflokkinn og jafnaðarstefnuna.
Það þjónar best hagsmunum almennings og íslensku framtíðarþjóðfélagi.
Hauður Helga
Alþýðu-
flokkurinn
er í sókn.
Þitt
atkvæði
eykur
sóknina.
Atkvæði
þitt er
mikilvægt.
Það getur
raðið
úrslitum.
xA
X A Alþýðuflokkurinn og þú eiga samleið