Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.04.1978, Page 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.04.1978, Page 1
tAlþýðublað Hafnarfjarðar XXXVII ÁPRÍL1978 2.TBL. Framboðslisti Alþýðuflokksins í Hafnarfirði við bœjarstjórnar kosningarnar 28. maí 1978 1. Hörður Zóphaníasson, skólastjóri. 2. Jón Bergsson, verkfræðingur. 3. Lárus Guðjónsson, vélvirki. 4. Grétar Þorleifsson, trésmiður 5. Guðríður Elíasdóttir, form. Verkakv. Framtíðin 6. Guðni Kristjánsson, verkamaður 7. Gunnar Friðþjófsson, formaður FLIJ 8. Eyjólfur Sæmundsson, efnaverkfræðingur. 9. Arnbjörg Sveinsdóttir, skrifstofumaður. 10. Bragi Guðmundsson, læknir. Framh. á bls. 8 Ávarp til Hafnfirðinga Hafnarfjörður hefur öll skilyroi til þess að vera hlýlegt og manneskjulegt bœjarfélag. Bœjarstœðið er sérkennilegt og fagurt, umhverfið hlýlegt og að- laðandi. Hafnfirðingar þurfa að finna bœði hald og traust í Hafnarfirði. Þeir verða að finna að þar stendur heimili þeirra föstum fótum, — finna að sam- hugur og samheldni rœður ríkjum í bæjarsamfélaginu. Hafnarfjörður á að vera eins og stórt, gott og myndarlegt heimili, þar sem hver og einn heimilis- maður finnur fyrir hlýju og umhyggju, jafnframt því sem hann fœr hvatningu til atervis og athafna. Við þetta verður að miða alla stefnumótun bœjarmála og allar ákvarðanir sem teknar verða í bœjarstjórn Hafnarfjarðar. Nú standa bœjarstjórnarkosningar fyrir dyrum í Hafnarfirði. Hinn 28. maí nœstkomandi eiga Hafnfirðingar kost á því að kjósa sér nýja bæjarstjórn. Sú bœjarstjórn þarf að vera traust, víðsýn og framsýn. Hún verður að vera fé- lagslega og lýðrœðislega sinnuð. Miðstýring bœjarráðs á að hverfa úr sögunni, það eiga fleiri en tveir menn að ráða bœjarmálum Hafnarfjarðar. Bæjarstjórn verður að endurheimta lög- leg völd sín, reisn og virðingu. Fjárhagsáætlun bœjarstjórnar verður að vera sá rammi sem stjórnað er eftir. Raunhœf greiðsluáœtlun á að gefa nefndum og ráðum aukna möguleika til raunhœfra áhrifa, stjórnar og stefnumótunar. Þannig eru lýðrœðislegir stjórnarhœttir. Atvinnulýðrœði, öryggi og heilbrigðissjónarmið á vinnustöðum eiga að vera ríkjandi sjónarmið. Bœjarstjórn á að hafa forystu íþessum málum ísam- vinnu við verkalýðshreyfinguna. Hafnarfjörður þarf að geta vaxið með öruggum og jöfnum hraða. Það verður alltaf að vera hœgt að bjóða upp á íbúðarbyggingar og aðstöðu til at- vinnureksturs. Nú eru hvorki fyrir hendi endanlega frágengin íbúða-né iðnaðarsvæði til að mœta eðlilegum vexti bœjarins. Fyrirsjáanlegur er sam- dráttur í hafnfirskum byggingariðnaði og atvinnuleysi. Bœjaryfirvöld mega ekki sofa á verðinum íþessum efnum. Hafnarfjörður hefur dregist aftur úr öðrum sveitarfélögum í dagvistarmál- um. Fjölmargir hafnfirskir foreldrar standa uppi ráðalausir, þegar þeir þurfa að koma börnum sínum á leikskóla eða dagheimili. Framkvœmdir og nýjar leiðir í dagvistarmálum er eitt afbrýnustu verkefnum nýrrar bœjarstjórnar. Markvisst verður að vinna að því eftir fyrirframgerðri áœtlun að Ijúka á kjörtímabilinu lagningu varanlegs slitlags á ófrágengnar götur og fegra opin svœði. Jafnhliða þarf að ganga þannig frá gangstígum og gangstéttum að öll- um sé greiðfœrt um bœinn, jafn gangandi fólki, fólki í hjólastólum og fólki með barnavagna. Til umferðaröryggis verði lögð gangstétt við Hjaliabraut. Atvinnulífið þarf að efla og gefa nýjum iðngreinum tœkifœri til þess að komast áfót. Bœjarútgerðina þarf að reka með hagkvœmissjónarmið í huga í góðu samstarfi við starfsfólk hennar. Nýjar skólabyggingar þurfa að rísa og nemendur skyldunámsins eiga að fá tœkifœri til að Ijúka skyldunámi sínu í einum og sama skólanum með ósundurslitnum skóladegi. Þessir skóla- nemendur þurfa líka að eiga kost á athvarfi á skóladagheimilum ef þeir þurfa á því að halda. Æskulýðs- og íþróttastarfsemi verður að styrkja og efla og bœjar- yfirvöldum ber skylda til að hlúa að hollri, frjálsri félagsstarfsemi. Hver skóli á að verða menningar- og félagsmiðstöð állra íbúanna ískólahverfinu. Þetta gerist ekki með óbreyttri bœjarstjórn. Um það höfum við órœkan vitnisburð. Hér þurfa að koma nýir menn til valda og áhrifa, sem marka nýja stefnu og nýja stjórnarhœtti. Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði hefur birt framboðslista sinn til bœjar- stjórnarkosninga í þessu blaði. Hann er skipaður góðu fólki sem líklegt er til farsœlla starfafyrir bœjarfélagið. ungt fólk á marga góða fulltrúa á listanum. Lárus Guðjónsson skipar þar þriðja sætið, baráttusœti listans. Hann er 26 ára og myndi lœkka verulega meðalaldur bœjarstjórnarinnar, ef hann nœr kosningu. Þess vegna hljóta þeir að kjósa A-listann sem vilja efla áhrif unga fólksins í bœjarstjórn Hafnarfjarðar. Þá hefur verið ákveðið að það fólk sem á listanum er komi reglulega saman til funda á nœsta kjörtímabili. Þannig mun það allt, hvert og eitt, verða þátt- takandi í mótun bœjarmálastefnu flokksins, leggja þar til mála og hafa áhrif. Það þarf að breyta til í bœjarmálum Hafnfirðinga. Hafnfirðingum gefst tœkifœri til þess í bœjarstjórnarkosningunum 28. maí í vor. Hafnfirðingur, — þú sem þessar línur lest. Ef þú vilt breyta, þá kjóstu Al- þýðuflokkinn. Að kjósa A-listann er að kjósa breytta stefnu í málefnum Hafnarfjarðar, þar sem maðurinn er tekinn fram yfir fjárgróðasjónarmiðin. Efþú villt breyta —þáxA Fulltrúaráð Alþýðuflokksins íHafnarfirði

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.