Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.04.1978, Blaðsíða 1
tAlþýðublað
Hafnarfjarðar
XXXVII ÁPRÍL1978
2.TBL.
Framboðslisti Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
við bœjarstjórnar kosningarnar 28. maí 1978
1. Hörður Zóphaníasson,
skólastjóri.
2. Jón Bergsson,
verkfræðingur.
3. Lárus Guðjónsson,
vélvirki.
4. Grétar Þorleifsson,
trésmiður
5. Guðríður Elíasdóttir,
form. Verkakv. Framtíðin
6. Guðni Kristjánsson,
verkamaður
7. Gunnar Friðþjófsson,
formaður FLIJ
8. Eyjólfur Sæmundsson,
efnaverkfræðingur.
9. Arnbjörg Sveinsdóttir,
skrifstofumaður.
10. Bragi Guðmundsson,
læknir. Framh. á bls. 8
Ávarp til Hafnfirðinga
Hafnarfjörður hefur öll skilyroi til þess að vera hlýlegt og manneskjulegt
bœjarfélag. Bœjarstœðið er sérkennilegt og fagurt, umhverfið hlýlegt og að-
laðandi. Hafnfirðingar þurfa að finna bœði hald og traust í Hafnarfirði. Þeir
verða að finna að þar stendur heimili þeirra föstum fótum, — finna að sam-
hugur og samheldni rœður ríkjum í bæjarsamfélaginu. Hafnarfjörður á að
vera eins og stórt, gott og myndarlegt heimili, þar sem hver og einn heimilis-
maður finnur fyrir hlýju og umhyggju, jafnframt því sem hann fœr hvatningu
til atervis og athafna. Við þetta verður að miða alla stefnumótun bœjarmála
og allar ákvarðanir sem teknar verða í bœjarstjórn Hafnarfjarðar.
Nú standa bœjarstjórnarkosningar fyrir dyrum í Hafnarfirði. Hinn 28. maí
nœstkomandi eiga Hafnfirðingar kost á því að kjósa sér nýja bæjarstjórn. Sú
bœjarstjórn þarf að vera traust, víðsýn og framsýn. Hún verður að vera fé-
lagslega og lýðrœðislega sinnuð.
Miðstýring bœjarráðs á að hverfa úr sögunni, það eiga fleiri en tveir menn
að ráða bœjarmálum Hafnarfjarðar. Bæjarstjórn verður að endurheimta lög-
leg völd sín, reisn og virðingu. Fjárhagsáætlun bœjarstjórnar verður að vera
sá rammi sem stjórnað er eftir. Raunhœf greiðsluáœtlun á að gefa nefndum
og ráðum aukna möguleika til raunhœfra áhrifa, stjórnar og stefnumótunar.
Þannig eru lýðrœðislegir stjórnarhœttir.
Atvinnulýðrœði, öryggi og heilbrigðissjónarmið á vinnustöðum eiga að
vera ríkjandi sjónarmið. Bœjarstjórn á að hafa forystu íþessum málum ísam-
vinnu við verkalýðshreyfinguna.
Hafnarfjörður þarf að geta vaxið með öruggum og jöfnum hraða. Það
verður alltaf að vera hœgt að bjóða upp á íbúðarbyggingar og aðstöðu til at-
vinnureksturs. Nú eru hvorki fyrir hendi endanlega frágengin íbúða-né
iðnaðarsvæði til að mœta eðlilegum vexti bœjarins. Fyrirsjáanlegur er sam-
dráttur í hafnfirskum byggingariðnaði og atvinnuleysi. Bœjaryfirvöld mega
ekki sofa á verðinum íþessum efnum.
Hafnarfjörður hefur dregist aftur úr öðrum sveitarfélögum í dagvistarmál-
um. Fjölmargir hafnfirskir foreldrar standa uppi ráðalausir, þegar þeir þurfa
að koma börnum sínum á leikskóla eða dagheimili. Framkvœmdir og nýjar
leiðir í dagvistarmálum er eitt afbrýnustu verkefnum nýrrar bœjarstjórnar.
Markvisst verður að vinna að því eftir fyrirframgerðri áœtlun að Ijúka á
kjörtímabilinu lagningu varanlegs slitlags á ófrágengnar götur og fegra opin
svœði. Jafnhliða þarf að ganga þannig frá gangstígum og gangstéttum að öll-
um sé greiðfœrt um bœinn, jafn gangandi fólki, fólki í hjólastólum og fólki
með barnavagna. Til umferðaröryggis verði lögð gangstétt við Hjaliabraut.
Atvinnulífið þarf að efla og gefa nýjum iðngreinum tœkifœri til þess að
komast áfót. Bœjarútgerðina þarf að reka með hagkvœmissjónarmið í huga í
góðu samstarfi við starfsfólk hennar. Nýjar skólabyggingar þurfa að rísa og
nemendur skyldunámsins eiga að fá tœkifœri til að Ijúka skyldunámi sínu í
einum og sama skólanum með ósundurslitnum skóladegi. Þessir skóla-
nemendur þurfa líka að eiga kost á athvarfi á skóladagheimilum ef þeir þurfa
á því að halda.
Æskulýðs- og íþróttastarfsemi verður að styrkja og efla og bœjar-
yfirvöldum ber skylda til að hlúa að hollri, frjálsri félagsstarfsemi. Hver skóli
á að verða menningar- og félagsmiðstöð állra íbúanna ískólahverfinu.
Þetta gerist ekki með óbreyttri bœjarstjórn. Um það höfum við órœkan
vitnisburð. Hér þurfa að koma nýir menn til valda og áhrifa, sem marka nýja
stefnu og nýja stjórnarhœtti.
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði hefur birt framboðslista sinn til bœjar-
stjórnarkosninga í þessu blaði. Hann er skipaður góðu fólki sem líklegt er til
farsœlla starfafyrir bœjarfélagið. ungt fólk á marga góða fulltrúa á listanum.
Lárus Guðjónsson skipar þar þriðja sætið, baráttusœti listans. Hann er 26 ára
og myndi lœkka verulega meðalaldur bœjarstjórnarinnar, ef hann nœr
kosningu. Þess vegna hljóta þeir að kjósa A-listann sem vilja efla áhrif unga
fólksins í bœjarstjórn Hafnarfjarðar.
Þá hefur verið ákveðið að það fólk sem á listanum er komi reglulega saman
til funda á nœsta kjörtímabili. Þannig mun það allt, hvert og eitt, verða þátt-
takandi í mótun bœjarmálastefnu flokksins, leggja þar til mála og hafa áhrif.
Það þarf að breyta til í bœjarmálum Hafnfirðinga. Hafnfirðingum gefst
tœkifœri til þess í bœjarstjórnarkosningunum 28. maí í vor.
Hafnfirðingur, — þú sem þessar línur lest. Ef þú vilt breyta, þá kjóstu Al-
þýðuflokkinn. Að kjósa A-listann er að kjósa breytta stefnu í málefnum
Hafnarfjarðar, þar sem maðurinn er tekinn fram yfir fjárgróðasjónarmiðin.
Efþú villt breyta —þáxA
Fulltrúaráð Alþýðuflokksins íHafnarfirði