Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.04.1978, Blaðsíða 8
A Iþýðublað Hafnarfjarðar
Framboð
Alþýðuflokksins
Framhald af bls. 1.
11. Ingvar Viktorsson, 12. Guðrún Emilsdóttir,
kennari. hjúkrunarfræðingur.
13. Guðfinna Vigfúsdóttir,
húsmóðir.
14. Gylfi Ingvarsson,
vélvirki.
15. Svend-Aage Malmberg,
haffræðingur.
16. Margrét Á.Kristjánsdóttir.
17. Dagbjört Sigurjónsdóttir,
ritari Verkakv^ Framtíðin
18. Guðni Bjöm Kjærbo,
kennari
19. Yngvi Rafn Baldvinsson,
íþróttafulltrúi.
20. Hrafnkell Ásgeirsson,
hæstaréttarlögmaður.
21. Stefán Gunnlaugsson,
deildarstjóri.
22. Þórður Þórðarson,
fv. framfærslufulltrúi.
Afmœlisgjöfin
tekin aftur.
Framkvœmdum við Lœkjaskóla frestað.
Lækjarskóli átti hálfrar
aldar afmæli á siðastliðnu
hausti og af því tilefni var tekin
fyrsta skóflustungan að nýrri
viðbyggingu við skólann við
hátíðlega athöfn. Allir vel-
unnarar skólans og allir sem
láta sig skólamál í Hafnarfirði
nokkru skipta fögnuðu þessum
atburði og sáu í anda hiklausar
og þróttmiklar framkvæmdir
hafnfirskum skólamálum til
heilla.
Og ekki stóð á því að fram-
kvæmdir hæfust. Byggingarfé-
lagið Knútur og Steingrímur
hófst handa við að undirbúa að
steypa grunninn. Þetta olli
skólastarfinu að sjálfsögðu
ýmsum óþægindum, svo sem
hávaða sem slíkum fram-
kvæmdum er samfara, skertri
nýtingu á leikvöllum skólans,
læstum bakdyrum á
skólahúsinu og fleira mætti
telja. Félagsaðstöðu nemenda
varð einnig að skerða vegna
byggingaframkvæmdanna. En
slík óþægindi stóðu hvorki í
nemendum né starfsfólki, sem
sá betri daga og betri starfsað-
stöðu ihillingum.
Svo var lokið við að steypa
grunninn og auglýst var eftir
tilboðum í viðbygginguna. En
nokkrar blikur voru á lofti um
seinkun framkvæmda, þar sem
í útboðinu var ekki gert ráð
fyrir meiri hraða en það, að
húsið yrði fokhelt 1.
september þessa árs. Margir
reyndu þó að leyna vonbrigð-
um sínum og hugguðu sig við
það, að enn mjakaðist þótt
hægt færi.
Átta tilboð bárust í verkið.
Lægsta tilboðið áttu nokkrir
ungir og framtakssamir Hafn-
firðingar, Viðar Halldórsson,
Jón Rúnar Halldórsson og Jón
V. Hinriksson. Tilboð þeirra
var 4% undir kostnaðaráætlun
og var samþykkt að taka til-
boði þeirra.
En nú tóku veður að gerast
válynd. Skólastjóri Lækjar-
skóla er veðrglöggur maður
og fékk einhvern grun um að
ekki væri allt sem skyldi með
þessar framkvæmdir. í fundar-
gerð Fræðsluráðs Hafnar-
fjarðar frá 5. apríl s.l. segir
orðrétt: „Skólastjóri Lækja-
skóla spurðist fyrir um það,
hvað liði áframhaldandi fram-
kvæmdum við væntanlega við-
byggingu Lækjaskóla. For-
maður Fræðsluráðs svaraði því
til, að hann vissi ekki betur en
áætlun viðvíkjandi þessari
framkvæmd myndi standast,
þ.e. viðbyggingin yrði fokheld
fyrir næstu áramót.“
Formaðurinn í þessu tilviki er
Vilhjálmur G. Skúlason bæjar-
fulltrúi og einnig var á þessum
fundi fræðsluráðsmaðurinn og
bæjarfulltrúinn Oliver Steinn.
Hvorugur þeirra vissi betur.
En daginn eftir, hinn 6. apríl
ætla ungu mennirnir að ræða
um nauðsynlegar tryggingar
vegna verksins við bæjarverk-
fræðing. Bæjarverkfræðingur
vísaði þeim niður til bæjar-
stjóra, sem sagði þeim þá að
hætt væri við allar fyrirhug-
aðar framkvæmdir í bili. Eftir
hádegi þann sama dag staðfesti
meirihluti bæjarráðs þessa
ákvörðun, en Kjartan
Jóhannsson taldi rétt að leita
eftir samkomulagi við tilboðs-
aðila um samninga með
rúmum og sveigjanlegum tíma-
mörkum framkvæmda. Á það
mátti ekki heyrast minnst.
Hætta skyldi við verk þetta án
frekari athugana! Á bæjar-
stjórnarfundi næsta þriðjudag
á eftir kom greinilega í ljós, að
þessi ákvörðun hafði verið tek-
in án minnsta samráðs við þá
bæjarfulltrúa meirihlutans sem
í fræðsluráði eru, þá Vilhjálm
og Oliver.
Sem betur fer munu vinnu-
brögð af þessu tagi vera eins-
dæmi. í fyrsta lagi er það lág-
marks tillitssemi og kurteisi
gagnvart flokksbræðrum sín-
um og samstarfsmönnum í
bæjarstjórn, sem sérstaklega
hefur verið falið af þessum
sömu mönnum að hafa með
höndum forsjá skólamála í
bænum, að hafa við að
minnsta kosti einhver samráð
við þá, áður en ákvörðun sem
þessi er tekin. í öðru lagi er
framkoman gagnvart verktök-
unum, lægstbjóðendum í
verki, siðlaus. í þriðja lagi er
öll þessi málsmeðferð vægast
sagt ámælisverð gagnvart
Lækjaskóla, nemendum hans,
starfsfólki og fyrirsvars-
mönnum.
Blaðið hafði samband við
hina ungu verktaka og spurði
þá um viðhorf þeirra til þessa
máls. Þeir sögðust vera mjög
óánægðir með þessa óvæntu
frestun, þar sem þeir hefðu
þegar eytt miklu fé og tíma í
áætlanir og undirbúning vegna
þessa verks. Þeir sögðu að
frestunin bitnaði ekki aðeins á
þeim, heldur einnig á fimm
undirverktökum þeirra, sem
hefðu þegar gert ráð fyrir
vinnu vegna Lækjarskólafram-
kvæmdanna og hafnað ýmsum
öðrum verktilboðum þeirra
vegna. Það eru því margir sem
eiga um sárt að binda vegna
máls þessa.
Mottóið rœður.
Mikið öngþveiti virðist nú
ríkja í málefnum Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar.
Sundrung ríkir milli yfir-
manna og verkafólks, og
meirihluti útgerðarráðs
virðist bæði skorta vilja og
getu til að greiða þar úr.
Hefði tillaga minnihluta-
flokkanna í bæjarstjórn um
atvinnulýðræði verið sam-
þykkt, hefðu þessi mál verið
auðleyst. Samband út-
gerðarráðs við verkafólk
hefði þá gert það að verk-
um, að auðvelt væri að
miðla málum. En motto
meirihluta útgerðarráðs í
samskiptum sínum við
verkafólkið er ekki
málamiðlun heldur að deila
og drottna.
Eflum áhrif jafnaðarmanna