Alþýðublað Hafnarfjarðar - 10.11.1978, Blaðsíða 2
g»n»n»nir)mr»n»n»n»r)»n»r)»n»n»n»n»n»r)ir)»D»D>D»D»D»DiD»D>DiD>D»D»D»D»DiD»D»D»DiDi>DiD>DlDlDlD>D>D>D>DBDls*D>D>DBDlD*g
)D»D>D>n»D>n»n»n»n»n»n»D»n>n»n>D»D>D>D>D>D>D»D»D»D>D»D»D»D»D»D»D>D>D»ni
ALÞÝÐUFLOKKURINN
EINA UMBÓTAFÉLAGIÐ
ALÞ YÐUFLOKKURIN N SLETT
RÍKISSTJÓRN ARSAMSTARFINU:
af því að samstarfsflokkamir reyndust jafn úrræðalausir og ríkisstjóm Geirs
Hallgrímssonar.
af því að engin samstaða var um aðferðir til úrbóta og árangurs
% af því að þjóðin eins og Alþýðuflokkurínn heimtar ný vinnubrögð
0 af því að hinir flokkamir féllust ekki á gerbreytta efnahagsstefnu
Alþýðuflokksins
KOSNINGARNAR SNÚAST UM:
0 hvort áfram skuli ríkja stjómleysi bráðabirgðalausna eða lagt til atlögu gegn
öngþveitinu eins og Alþýðuflokkurinn vill
0 hvort gerbreytt efnahagsstefna skuli verða ríkjandi eða áframhaldandi
skammtímakák
Alþýðuflokkurinn boðar atíögu gegn
Með skynsamlegri nýtingu á auölindum lands og sjávar og skipulegri
stjórn á framleiðsiutækjum og fjárfestingu geta íslendingar lifað góðu
Iffi f þessu landi.
En togstreita, stjómleysi og ábyrgðarleysi hefur stefnt málum okkar i
öngþveiti. Ofþensla, gusugangur og óstöðugleiki í efnahagslifinu sliga
heimilin og grafa undan framförum.
Öngþveitið birtist i óðaverðbólgu, i vinnuþrældómi og baktjaldagróða
forréttindahópa. í verðbólgunni veröa fjármái heimilanna og atvinnu-
fyrirtækjanna að allsherjar kapphlaupi, þar sem þeir heiðarlegu og minni
máttar troöast undir. Misrétti magnast, en allt launafólk býr við óvissu
um kaup sitt og kjör. Stjórnvöld og launþegasamtök hafa ekki náð
tökum á vandamálunum.
Verðlagskerfiö er ónýtt, skattakerfið er sprungið og lánveitingar era i
farvegi skömmtunarkerfis. Launakerfi eru svo flókin, að launafólk áttar
sig tæpast á eigin launum.
Þessu verður að linna.
öngþveitínu.
Við viljum þjóðfélag jafnvægis og öryggis með framsýnni nýtingu
auðlindanna, skipulegri fjárfestingu og hóflegu vinnuálagi. I stað
baktjaldagróða renni afrakstur vinnunnar til starfandi fólks. Fólk eigi
trygga og fyrirsjáanlega afkomu, geti gengið að sjálfsögðum hlutum
visum, dreift ibúðarbyggingarátakinu á starfsævina og notið fjölskyldu-
lifsins ótruflað af hóflausri vinnu. Stjórakerfi þjóöfélagsins séu virk og
virt. Stjórnmál og stjórnsýsla snúist ekki um bjargráð til bráðabirgða
heldur markvissa uppbyggingu, aukið lýðræði og jafnrétti.
En misrétti verður ekki eytt, né lífskjörin bætt og jöfnuð og öryggi náð
nema vikið verði af vegí verðbólgunnar. Heilbrigðara efnahagslif er
undirstaða þjóðfélags.
Alþýöuflokkurinn hefur boðað gerbreytta efnahagsstefnu og jafn-
vægisbúskap, þar sem samstillt átak kæmi i stað bráðabirgðalausna.
ítrekuð viðleitni til þess að ná þessari stefnubreytingu fram i siðustu
rikisstjóra bar ekki árangur og áfram stefndi i sama úrræðaleysi,
skammtimakák og skæklatog eins og allan þennan áratug. Stefnunni trúr,
þegar árangursleysið var augljóst, stóð Alþýðuflokkurinn upp og
krafðist kosninga frekar en sitja eins og siðurinn hefur verið.
KJÓSUM GEGN ÚRRÆÐALEYSI LH)ANDI ÁRATUGAR
• Stöövum landbúnaöarvítíeysuna
• Heimtum nýtt og réttíátara skattakerfi
• Landiö sameign
• Atvinnulýðræði er mannréttindi
• Réttíátara dómskerfí
• Sameiginleg verðtryggð eftirlaun
Aðrir gefa stefnuna upp á bátinn. Við metum
stefnuna meira en setu í ráðherrastólum.
i€aia€aiafaiaiacacataiaca€acacacaca€(Ma€a€a€acafafaffacaiaiacacaiacaia€ac
QÐ1D1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1D1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1D1Ð1Ð1Ð1Ð1ÐM31Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1D1ÐIÐ1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1ÐIDCÐ1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð1Ð