Alþýðublað Hafnarfjarðar


Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.04.1993, Page 1

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.04.1993, Page 1
Alþýðublað Hafnarfjarðar 6. tbl. 51. árg. aprí!1993 Þúsundir gesta streyma á VOR '93 í Kaplakrika. Þúsundir gesta hafa streymt á stórsýninguna í Kapla- krika, VOR'93, Athafnadagar í Hafnarfirði .Þegar blað- ið fór í prentun um miðjan dag á föstudag, hafði sýningin aðeins verið opin á miðviku- dagskvöld og allan fimmtudag og var talið að aðeins þessa fyrstu daga hefðu rúmlega sjö þúsund manns komið á sýninguna. Sýningin verður opin nú um helgina, laugardag og sunnudag og vill Alþýðublað Hafnarfjarðar hvetja alla sem eiga þess kost að sjá sýningu- na. Athafnadagar í Hafnarfirði hafa sýnt það og sannað að góður gangur er hér í Hafnarfirði, þótt erfiðleikar samdráttar og atvinnukreppu steðji að hér í bænum sem annars staðar. En í góðu samstarfi bæjaryfirvalda, verkalýðs- hreyfingar og atvinnurekenda og alls almenn- ings í bænum mun okkur takast að vinna okkur út úr erfiðleikunum og snúa vörn í sókn. Stór- sýningin í Kaplakrika er til marks um það hvað hægt er þegar samstaðan er til staðar. Sýnendur í Kaplakrika, milli 80-100 aðilar hafa varpað ljósi á það fjölmarga jákvæða sem í gangi er í Hafnar- firði. Þeir voru og hæstánægðir með viðbrögð sýningargesta. Og ekki síður voru gestirnir sjálfir glaðir og reifir og margir lýstu því yfir að gleðin og ánægjan , krafturinn og einhug- urinn, sem svifi yfir sýningunni, hinn góði andblær, fyndist svo vel alls staðar í hinu stóra og glæsilega Kaplakrikahúsi. Alþýðublað Hafnarfjarðar vill óska öllum þeim til hamingju sem að þessu framtaki hafa staðið. Hafnfirðingar geta verið stoltir af at- hafnadögum í Hafnarfirði '93. Sýningin er góður grundvöllur til frekari sóknar í Hafnar- firði. Hér á síðunni eru nokkrar svipmyndir frá opnunardögunum. En sjón er sögu ríkari og á laugardag og sunnudag verður líf og fjör í Krikanum. Þá er og minnt á brennu og flugeldasýningu á Kaplakrikasvæðinu klukkan hálf níu á laugardags- kvöld. Allir bæjarbúar eru velkomnir. Laddi í aervi Gaflarans, brosmildir sýningargestir fylgjast með upp- ákomum og skemmtiatriðum, Ingvar Viktorsson á leið í sprautuboltakeppni, Guðmundur Arni og Ingvi Hrafn í 19.19. Þetta og margt fíeira í gangi á líflegu VORI'93. Allir í Krikannl

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.