Alþýðublað Hafnarfjarðar - 20.04.1993, Blaðsíða 1
Alþýðublað
Hafnarfjarðar
6. tbl. 51. árg. aprí!1993
Þúsundir gesta
streyma á VOR '93 í Kaplakrika.
Þúsundir gesta hafa streymt á stórsýninguna í Kapla-
krika, VOR'93, Athafnadagar í Hafnarfirði .Þegar blað-
ið fór í prentun um miðjan dag á föstudag,
hafði sýningin aðeins verið opin á miðviku-
dagskvöld og allan fimmtudag og var talið að
aðeins þessa fyrstu daga hefðu rúmlega sjö
þúsund manns komið á sýninguna. Sýningin
verður opin nú um helgina, laugardag og
sunnudag og vill Alþýðublað Hafnarfjarðar
hvetja alla sem eiga þess kost að sjá sýningu-
na.
Athafnadagar í Hafnarfirði hafa sýnt það og
sannað að góður gangur er hér í Hafnarfirði,
þótt erfiðleikar samdráttar og atvinnukreppu
steðji að hér í bænum sem annars staðar. En í
góðu samstarfi bæjaryfirvalda, verkalýðs-
hreyfingar og atvinnurekenda og alls almenn-
ings í bænum mun okkur takast að vinna
okkur út úr erfiðleikunum og snúa vörn í sókn. Stór-
sýningin í Kaplakrika er til marks um það hvað hægt
er þegar samstaðan er til staðar.
Sýnendur í Kaplakrika, milli 80-100 aðilar hafa varpað
ljósi á það fjölmarga jákvæða sem í gangi er í Hafnar-
firði. Þeir voru og hæstánægðir með viðbrögð
sýningargesta. Og ekki síður voru gestirnir
sjálfir glaðir og reifir og margir lýstu því yfir
að gleðin og ánægjan , krafturinn og einhug-
urinn, sem svifi yfir sýningunni, hinn góði
andblær, fyndist svo vel alls staðar í hinu
stóra og glæsilega Kaplakrikahúsi.
Alþýðublað Hafnarfjarðar vill óska öllum
þeim til hamingju sem að þessu framtaki hafa
staðið. Hafnfirðingar geta verið stoltir af at-
hafnadögum í Hafnarfirði '93. Sýningin er
góður grundvöllur til frekari sóknar í Hafnar-
firði.
Hér á síðunni eru nokkrar svipmyndir frá
opnunardögunum. En sjón er sögu ríkari og á
laugardag og sunnudag verður líf og fjör í
Krikanum. Þá er og minnt á brennu og flugeldasýningu
á Kaplakrikasvæðinu klukkan hálf níu á laugardags-
kvöld. Allir bæjarbúar eru velkomnir.
Laddi í aervi Gaflarans, brosmildir sýningargestir fylgjast með upp-
ákomum og skemmtiatriðum, Ingvar Viktorsson á leið í
sprautuboltakeppni, Guðmundur Arni og Ingvi Hrafn í 19.19. Þetta
og margt fíeira í gangi á líflegu VORI'93. Allir í Krikannl