Jörð - 01.04.1941, Page 24
því fram, að hún sýndi hermanni hér bliðuatlot í því skyni
að vinna styrjöldina um Atlantshafið. Valdi því vandlæt-
ing fyrir íslands hönd, er það fálm sjúkrar vanmeta-
kenndar —■ og því auðvirðilegra senr áhættan hefur reynzt
minni, enda er alls óvíst, hvort sörnu menn mundu vera
öruggari en aðrir, ef með vopnum liefði verið unnt að
vega. Og framar öllu er hvers konar ruddaskapur, við
hvern sem liann kemur fram, allt af jafnframt dónaskap-
ur við sjálfan sig, merki veikleiks en ekki stvrldeiks, enda
oft og einatt framinn i því ástandi, sem litillækkar mann-
inn miklu meira en liitt ástandið þjóðina, af því að það
er sjálfskaparvíti.
HÉR Á LANDI koma fyrir furðu mörg dæmi þess,
liversu menn geta lagzt lágt í einrúmi, þegar þeir
vita, að enginn sér til þeirra og það er vítalaust af öðr-
um. Eitt af því, sem alkunnast er og hverjum óspilltum
manni skilj anlegt, þótt i smáum stíl sé, er skemmdarfýsn
sú, sem kemur fram í meðferð á sæluhúsum og ýmsum
eignum, sem enginn er til þess að gæta. Það væri fróð-
legt að geta séð inn i hug þeirra manna beinlínis, sem
hafa ánægju eða ósjálfráða þörf á að vinna slík verlc. tJr
þvi hugarfari mætti lesa mikið af arfgengum vesaldómi
gamallar kúgunar, fátæktar og hræsni, rangsnúins upp-
eldis, sem gæti orðið þjóðinni hræðileg áminning þess,
hvers henni er ábótavant. Yerknaður af þessu tagi veld-
ur ekki nema örlitlu efnalegu tjóni. Sá hagfræðismæli-
kvarði, sem nú á dögum er algengast að leggja á flesta
hluti, nær skammt til þess að meta hann að verðleikum.
Og liann nýtur sín ekki heldur, ef hann er dæmdur eftir
siðfræðinni, miðaður við skylduna við náungann. Hann
er um fram allt svívirðing mannsins, sem veldur honum,
á sjálfum sér. Þetta er dæmi, sem sýnir, einmitt af því
að það er svo einfalt og auðskilið, að til er siðfræði
kurteisinnnar við sjálfan sig, sem i senn er auðveldara
að skýra og samt kröfuharðari en hið horgaralega sið-
ferði venjulegast er. Hin meiri háttar dæmin eru einatt
22 JÖRÐ