Jörð - 01.04.1941, Page 68
Stærð fræjanna er einnig mjög misjöfn og þar af leið-
andi mjög mismunandi mörg fræ í einu grammi af ólík-
um tegundum. T. d. eru venjulega 3—400 frækorn í einu
gr. af kál- og gulrófnafræi, en helmingi fleiri í sama
skammti af næpum. Og fræ sumra matjurta, eins og t.
d. Timian (blóðberg), sem er að vísu ekki ræktað bér,
er svo smátt, að þar fara 12—15 þúsund í hvert gr.
Gróhraði fræja hinna ýmsu tegunda er mismunandi
langur. Fræ sumra krossblóma, t. d. gulrófna og kálteg-
unda, spirar á 4—7 dögum við góð skilyrði, en fræ af
gulrótum og steinselju þarf oft 16—24 daga til að spíra.
Til eru fræ af vissum sjaldgæfum jurtum, sem spíra ekki
fyr en á öðru ári eftir sáningu. Garðeigandi þarf helzt
að vita nokkur skil á, hve spírunartími fræsins er lang-
ur og einnig, live grómagn fræsins er mikið, því þar eftir
fer nokkuð, hve fljótt skal sá. Meiri háttar fræverzlanir
taka oft fram, hvert sé frjómagn hinna einstöku tegunda
og afbrigða vöru þeirra. Standi t. d. á gulrófnafræbréf-
um, að „spírunarprócent“ sé 70, veit kaupandi, að af liverj-
um 100 frækornum eru 30 ónýt.
Til þess að fræ geti spírað með eðlilegum hætti, þarf
loft (og Ijós), hlýju og raka. Þessi skilyrði eru venju-
lega fyrir í moldinni að vorlagi, sé hún i rækt og vel
unnin. Birlunnar njóta plönturnar undir eins og þær
koma upp. Það er mismunandi, live fræ ýmsra tegunda
þarf langan tíma lil að spíra, t. d. spírar fræ af islenzk-
um gulrófum venjulega 1—2 dögum fyr en fræ af erlend-
um gulrófum. Nauðsynlegt er, að jörð sé unnin vel, áð-
ur en sáð er, og því betur sem fræið er smærra. Það greið-
ir mjög fyrir rótamyndun plantnanna; en þess greinótt-
ara sem rótarnetið verður, því hetur stendur jurtin að
vígi með að afla sér vatns og næringarefna úr moldinni.
Margir spyrja um, hve djúpt skuli sá. Góð regla, sem
auðvelt er að muna, er, að sáðdýpt fer jafnan eftir stærð
fræsins. Oft er svarað á þann veg, að ofan á fræinu eigi
að vera þrisvar sinnum þykkri mold en fræið er sjálft.
Aigengt er, að menn sái fræi allt of djúpt og tefur það
66 JÖRÐ