Jörð - 01.04.1941, Blaðsíða 86
ágætur, þá virðist vanta í hann þá hörku, sem nauðsyn-
leg er til þess að keyra undir sig leikara þá, sem hann
á að þjappa saman í eina heild. Þann eiginleika hefir
aftur á móti annar maður, sem við leiðbeiningu fæst, en
skortir allmjög aðra hæfileika til þess. Ef hægt væri að
gera einn mann úr þeim báðum, væri kominn ágætur leið-
beinandi, en eins og nú er, er sitt á hvað: að fágun sé
ágæt, en skorðun of lítil, eða fágun sé of lítil, en skorð-
un of mikil, og er hvorugt gott, en hið síðara þó langverst.
Leikdómarcir eiga í raun réttri ekki sjö dagana sæla,
ef þeir vilja vinna verk sitt af alúð. Þeir verða, ef þess
er kostur, að lesa fyrirfram leikrit þau, sem sýnd eru.
Þegar í leikhúsið kemur geta þeir ekki, eins og annað
fólk, liagrætt sér, heldur verða þeir að vera með augu
og eyru galopin. Þeir verða að taka eftir öllu og vera
um leið metandi, samræmanandi, og ályktandi hið innra
með sjálfum sér, og reynandi þrátt fyrir þetta að missa
hvorki heildaráhrifa, né áhrifa einstakra atriða. Þeir geta
])ví ekki notið leiksins eins og aðrir áliorfendur fyrir-
hafnar- og vinnulaust. Þegar þeir koma heim undir mið-
nætti verða þeir tafarlarst að hrófla upp grind að leik-
dómnum, meðan allt er ferskt fyrir þeim, og stundum
jafnvel fullgera hann þá.
Ilverjir hafa gagn af leikdómum, og hvaða gagn er að
þeim? Þeim er ætlað að vera til gagns fyrir hæði áliorf-
endur og leikendur. Leikdómurinn á fyrst og fremst, ef
eitthvað kynni að vera í leikritinu, sem eklci er aðgengi-
legt, en í sjálfu sér þó nýtilegt, að reyna að létta mönnum
skilning á því, en sé leikritið lítils eða einkis nýtt, þá á
að benda á það og rökstyðja það, hæði frá siðferðilegu,
fagurfræðilegu og dramatisku sjónarmiði. Séu mjög mikil
brögð að vanköntunum, þá verður að vara menn við að
eyða fé sínu í að sjá leikinn og styðja með því menn-
ingarlausa leikstarfsemi.
Leikendur sjá alla vinnu sína af leiksviðinu sjálfu og
í ljósi þess, en aldrei verkanir hennar á áhorfendur, ncma
með augum leiðþeinandans. Honum getur missýnst og
84 jöbi>