Jörð - 01.04.1941, Blaðsíða 111
kimdu rósamlega við hættum og skapraunum, þó að eldur bálaði
inni fyrir. Breiðfirðingurinn opnar oss hug sinn i eftirfarandi bréf-
kafla, sem skrifaður er snemma ó Þorranum:
„Mér þótti vænt um greinarkorn á kápu 3. hefti JARÐAR..........
Hðfundurinn virðist þeirrar skoðunar, að islenzku skipin hafi fyr-
ir sérstaka varðveizlu æðri máttar komizt slysalaust fram hjá vít-
isvélum öfriðarþjóðanna......Ég trúi því — ég er sannfærður um,
að ekkert annað en Guðs almáttugs hendi hefir bægt voðanum frá.
En — höfum við unnið til þess? Ónei, og aftur nei. En geti ekki
þetta, og önnur Guðs miskunnsemi við okkur, gert okkur trúaða,
hvað megnar þá að draga huluna frá augum okkar? Ég hefi verið
að hlusta nákvæmlega eftir ræðum prestanna í útvarpinu, livort
enginn vildi kveða upp úr og segja þetta skýrum orðum. Nei —
enginn heint, en margir hafa tæpt á því. .. Hvers vegna þessi feimni,
þessi hræðsla? Er j)að óttinn við að verða að athlægi? Eða halda
roenn, að síðar meir verði hrúgu af skipum okkar sökkt og þá
"verði spurt: Hvers vegna verndaði Guð ekki þessi skip? Búast þeir
við að standa þá uppi svaralausir?! .. „í þeirri horg gat hann
ckkert kraftaverk gert sökum vantrúar íbúanna.“ Átján mánuðir eru
liðnir af styrjöldinni og'engin vítisvél hefir grandað neinum okkar
manni. Hatramleg lofárás var gerð á „Arinbjörn hersi“. Að honum
var varpað tólf sprengjum úr fárra metra hæð; engin hitti. Ef van-
Irú Islendinga er svo mikil, að þeir fara nú ekki almennt að trúa
°g treysta handleiðslu Guðs á þessum voðalegu timum, þá er ekk-
crt líklegra en að þeir komi í veg fyrir áframhald kraftaverksins.
Menn segja raunar, að tími kraftaverka sé liðinn, en þeim skjátl-
ast stórlega.....Mér virðist, að efnisdýrkun þessarar aldar hafi
verið orðin svo mikil, jafnvel hér í okkar landi, að óhugsandi sé,
að hún yrði læknuð, nema með því að skera inn að beini. En ég
held, að upp úr þessu voðalega blóðbaði eigi eftir að rísa ný Jörð,
hetri Jörð, skynsamari menn, trúaðir menn — ekki trúaðir á vizku
tnannlegra leiðtoga, heldur vitandi um eigin smæð......Allt, sem
*öennirnir hafa dýrkað mest undanfarið, verður að sýna sig í allri
sinni aumu nekt; annars er lækning óliugsandi .... Hvað hafa
mennirnir dýrkað? Ilnefaréttinn. .. Á meðan þeir taka ekki Krist
tii fyrirmyndar, verður Jörðin eins og hún er......
Mig órar fyrir, að við eigum eftir að sjá fleira, reyna meira. En
það verður allt i Guðs hendi. Þegar ég efaðisl mest i sumar, er
Jeið, kom nokkuð fyrir mig, sem ég get ekki skýrt, en síðan er
ckki minnsti ótti í hug mínum. .. Ég var háttaður og að festa
svefn, en heyrði þá undurhljómþýða rödd, er mælti: .„Óttastu ekki,
barnið mitt. Þetta fer allt vel.“ Ég var ekki sofandi og ekki vak-
andi, .. og hvað, sem segja má um þetta, þá er eitt víst: é g er
sannfærður um, að til mín hafi borizt bending frá æðra heimi.“
JÖRÐ