Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 19
vil bæta við þakklæti mínu fyrir góða og mér hugljúfa sam-
vinnu við ráðherrana um langan tíma og von minni um, að
góð samvinna megi haldast einnig eftir breytingu þá, sem
nú er orðin.
Háa Alþingi! Hæstvirt ráðuneyti! Allir þér, sem heyrið
mál mitt! íslendingar!
Um leið og ég tek við þessu virðulega og ábyrgðarmikla
starfi, tel ég skylt, að vér minnumst þess manns, sem allt
fram að 10. Apríl 1940 fór með æðsta vald íslands, sem mér
er nú trúað fyrir í eitt ár, Hans Hátignar Kristjáns X., sem
H'á 1. Desember 1918 liefir verið konungur íslands og Dan-
merkur, fyrsti konungur með þeim titli.
Eins og kunnugt er, var það Kristján konungur X., seni
á 7. ríkisstjórnarári sínu í Danmörku staðfesti með undir-
skrift sinni, að fsland skyldi vera frjálst og fullvalda ríki,
að alþjóðalögum jafnrétthátt Danmörku og öðrum frjáls-
Um og fullvalda ríkjum.
Auk annarra mannkosta hans, sem ég hefi átt kost á að
kynnast, tel ég mig geta fullyrt það, að hann hefir jafnan
rækt konungsstörf sín sem konungur fslands, án þess að
vilcja af þeirri braut, sem samkvæmt viðurkenndum venjum
nútimans er mörkuð þingbundnum konungi í lýðræðisriki.
Ég vil einnig nú í dag minna á annað. Það féll í minn hlut
að tilkynna Kristjáni konungi, nokkuð óviðbúið, þá ályktun
Aþingis 10. Apríl 1940, að vald það, sem hann hafði til þess
áags farið með sem konungur ísfands, væri nú falið ráðu-
lleyti íslands, að svo stöddu. Konungur tók þessari tilkynn-
|ígu eigi aðeins með virðulegri stiilingu, heldur, svo að
segja umhugsunarlaust, með fullkomnum skilningi. Hann
sanxsinnti skilyrðislaust réttmæti og nauðsyn þessarar á-
kvörðunar Alþingis.
Og nú hefir Kristján konungur X. reynzt þjóð þeirri, sem
kann er borinn af, Dönum, betur en nokkru sinni fyrr. Nú,
er Dönum reið mest á, hefir hann oi’ðið allt í einu: Forustu-
Uiaður, einingarmerki og næstum þjóðhetja dönsku þjóð-
arinnar.
JÖRÐ
l(il