Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 29
ER FORSETI haföi lesið upp yfirlit þetta, hélt hann
áfrani máli sínu sem hér segir:
Störfum þessa Alþingis er nú lokið. Það er hið 56.
löggjafarþing, en 71. samkoma frá því Alþingi var end-
urreist. Frá stþfnun Alþingis eru liðini 1011 ár, en 679
frá því ísland játaðist undir yfirráð erlends konungs. Eitt
ár er liðið síðan meðferð hins æðsta valds i málefnum rik-
isins var aftur flutt inn í landið, og nú segir í fyrsta sinn
kjörinn íslenzkur ríkisstjóri Alþingi slitið.
Aldrei hefir Alþingi verið háð við slík skilyrði sem nú.
Erlendur her situr í landinu, en utan valdsviðs íslenzlcra
laga og hýr við sjálftekinn rétt. Að vísu eru liersveitir
þessar frá þjóð, sem jafnan hefir sýnt okkur Islending-
um fullan vinskap og lítur svipuðum augum og við á
gildi lýðræðis og rétt smárra þjóða til þess að ráða
sér sjálfar. Stjórn setuliðsins liefir og lýst yfir því, að
hún muni á engan hátt hafa afskipti af íslenzkum
málefnum og vilji virða rétt vorn í hvivetna. Skal sá
vilji ekki véfengdur. En heitorð þetta er hundið því
skilyrði, að eigi fari í hága við hernaðarlega nauðsyn.
Og mat slikrar nauðsynjar er á valdi herstjórnarinn-
ar, en ekki íslendinga. Við eigum ekki annars úrkosta
en að vænta þess, að réttsýni og drengskapur þeirra, er her-
stjórnina hafa, sé slíkur, að þeir misbeiti eigi þessu valdi,
'Qg þá ekki síður hins, að hver íslendingur gæti jafnan þeirr-
ar skyldu, að gefa ekkert réttmætt tilefni til afskipta af ís-
lenzkum málefnum.
TÓRVELDASTYRJÖLDIN hefir nú geisað í nærfelll 2
^ ár. Æ fleiri þjóðir diagast inn í þennan liildarleik, og
"verða að láta frelsi og sjálfsforræði eftir dýrar fórnir. Á-
tökin harðna stöðugt. Átakasvæðið færist nær og nær. í 13
niánuði hefir herlið annars aðila ófriðarins dvalið hér. Hinn
aðilinn hefir lýst yfir því, að landið sé innan liernaðarsvæð-
isins, lagt hlátt hann við öllum siglingum að því og frá og
öótað að tortíma hverjum þeim, sem freistar að hrjóta það
bann. Tugir sjómanna hafa verið skotnir vopna- og varnar-
JÖRÐ 171