Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 32
tíðina, og margt bendir til, að í þessum efnum sé breyting
í vændum og erfiðir tímar framundan, einnig á þessu sviði.
Verðlag innanlands fer stöðugt hækkandi, og mjög hefir á
flestum sviðum dregið úr þeim framkvæmdum, sem i eru
varanleg verðmæti. Ekki hefir reynzt kleift að fylla þau
skörð, sem orðið liafa á skipastól okkar, þótt nægilegt laust
fé sé fyrir hendi. Er það nú eitt höfuðviðfangsefnið, sem
framundan er, hversu hezt megi verja þessu lausa fé þjóð-
inni til frambúðarnytja.
Hinar auknu tekjur atvinnufyrirtækja og einstaklinga
hafa gert Alþingi fært að breyta skattalöggjöfinni mjög
verulega í þá átt að létla skatta á þeim, sem hafa lágar tekj-
ur eða miðlungstekjur, og tryggja þó rikissjóði um leið
rýmri fjárhag. Jafnframt liefir Alþingi gert ráðstafanir til
þess, með ákvæðum hinna nýju skattalaga um Nýbygging-
arsjóð, að alhnikill liluti liinna hærri tekna verði lagður tit
hliðar, til endurnýjunar og aukningar framleiðslutækjanna,
og verði þannig undirstaða vaxandi atvinnu og afraksturs,
en eigi eyðslueyrir.
Á sama hátt bafa hinar auknn tekjúr rikissjóðs gert Al-
þingi fært að sinna í ríkara nræli en áður margháttuðum
verkefnum, er miða að því að bæta afkomuskilyrði almenn-
ings og auka atvinnu í landinu lil frambúðar.
Má í því sambandi nefna löggjöf um landnám ríkisins
og jarðakaup vegna kauptúna og sjávarþorpa, ásamt stofn-
un lánadeildar smábýla, aukningu á starfsfé Fiskveiðasjóðs
íslands og veðdeildar Landsbankans, enn fremur breytingu
á lögum um verkamannabústaði, um Byggingar- og land-
námssjóð og stóraukin framlög til allra þessara fram-
kvæmda, svo og til nýbýla og endurbygginga sveitabæja.
Framlög ríkisins til alþýðuskóla, svo sem gagnfræðaskóla,
héraðsskóla, ungmennaskóla, húsmæðraskóla og annarra,
sem ekki eru eign ríkisins, hafa og verið aukin lil stórra
muna. Þá hefir Alþingi og afgreilt ný lög um húsmæðra-
fræðslu í kaupstöðum og breytt nokkuð eldri lögum um
sams konar fræðslu í sveitum og loks heimilað ríkisstjórn-
inni að leggja fram þegar á næsta ári hálfa milljón króna
174 JÖRÐ