Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 35
um, voru þess á sama liátt valdandi, að konungi vorum var
óldeift að fara með þau mál, er honum bar að fara með
samkvæmt stjórnarskrá ríkisins.
Samkvæmt ályktun Alþingis sama dag hefir því ráðuneyti
íslands síðan farið með vald konungs hér á landi.
Alþingi hefir nú ályktað að kjósa sérstakan ríkisstjóra,
er fari með æðsta vald i málefnum íslands þar til gengið
verður frá endanlegri stjórnarskipun ríkisins. Alþingi liefir
einnig sett lög um störf og skyldur ríkisstjóra og í dag kos-
ið herra Svein Björnsson til þess að gegna þessu starfi til
jafnlengdar næsta ár. Tók liann við emhætti hér á Alþingi
1 dag.
Loks hefir Alþingi ályktað að lýsa yfir þeim vilja sínum,
að lýðveldi verði stofnað á Islandi jafnskjótt og samband-
inu við Danmörku verður formlega slitið.
Þessar ályktanir Alþingis þurfa engra skýringa við. Þær
tala sínu máli.
En á þessum merkilegu tímamótum er þess gott að minn-
ast, að sambúð íslenzku þjóðarinnar og dönsku þjóðarinnar
hefir jafnan verið góð og stöðugt batnandi, síðan sáttmáli
Ifjóðanna var gerður fyrir 23 árum. Samtímis því, sem hin
sijórnarfarslegu hönd milli þjóðanna urðu lausari og færri,
Jokst vinátta og samvinna á mörgurn, sviðum. Það er von
mín og einlæg ósk, að svo megi aftur verða, þegar þeim ógn-
um linnir, sem nú ganga yfir heiminn. Sterkar taugar marg-
háttaðra samskipta, frændsemi og sameiginlegrar norrænn-
ai' arfleifðar hljóta ávallt að tengja þessar þjóðir saman, og
t**!- háðar við hinar aðrar þjóðir Norðurlanda.
Eins og danska þjóðin og forráðamenn hennar liafa virt
Sattmálann í hvívetna og við hann staðið, meðan fært var,
ei»s höfum við íslendingar viljað virða sáttmálann á allan
^átt og engum skyldum bregðast. En rétt okkar viljum við
eiga fullan og óskoraðan.
Eg leyfi mér að bera fram þakkir Alþingis til sambands-
bjóðarinnar og forráðamanna hennar fyrir samstarf síð-
llstu áratuga, og þá um leið fyrir hlý orð forsætisráðherra
lennar í okkar garð nú fyrir skemmstu.
JÖRÐ
177