Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 43
Væntum vér, þótt styrjöldin gej’si nú víða um heim, að
þessar verklegu framkvæmdir verði ekki látnar niður i'alla,
en byggingu íþróttahverfisins lialdið áfram, eftir því sem
tök verða á.
Vér megum ekki gleyma æskulýðnum á þessum örlaga-
ríku tímum, þegar vér erum, nú í dag, að koma nýrri
skipan á sjálfstæðismál Islands og æðslu stjórn þess. All-
ir iþróttamenn óska liinum nýkjörna ríkisstjóra íslands,
Sveini Björnssyni, heilla og' hamingju í framtíðinni; því
þar er réttur maður á réttum stað. Og oss er það mikil
sæmd, að hann er einn af fyrstu virlcu íþróttamönnum
landsins, er endurreisn íþróttanna hófst hér fyrir og eft-
ir síðustu aldamót.
íþróttamenn hafa lengi alið þá von i brjósti, að 17. Júní
verði kjörinn til þjóðhátíðardags vor íslendinga. Er
niargt, sem mælir með því, en ekki er tími til að rekja
það hér. Ég vona, að nýskipan sú á málefnum Islands,
sem nú er tengd við daginn, festi liann svo í minni þjóð-
arinnar í framtíðinni, að hann verði oss öllum ógleym-
enlegur og öllum hvatning lil drengskapar og dáða.
Á þessu 17.-Júni-móti íþróttamanna hlasa minningarn-
ar við. Vér minnumst þessa dags fj’rir 30 árum, er fyrsta
fimleikakeppnin var liáð og íþróttafélag Reykjavíkur vann
sinn fyrsta glæsilega fimleikasigur. Vér minnumst fyrsta
allsherjarmótsins þennan dag, og svo ótal margs fleira,
sem ekki er tími til að drepa á hér.
I þá liálfa öld, sem íþróttastarfið i höfuðstaðnum hef-
ir verið rækt, hefir það þróazt smátt og smátt; dafnað
°g vaxið ár frá ári. Enn eru t. d. í fullu fjöri tvö fyrstu
íþróttafélögin: Glímufélagið Ármann og Knattspyrnufélag
Reykj avíkur, sem stofnuð voru fyrir aldamótin síðustu
(Ármann 1889 og Iv.R. 1899). Og mörg fleiri íþróttafélög
hafa bæzt við í hópinn síðan.
Nú í dag eru 110 félög innan íþróttasambands Islands,
undir merki I.S.I., með um 15 þúsund félagsmenn, víðs-
vegar um landið. Og auk þess 15 íþróttaráð. Iþróttastarf
hinna frjálsu íþrótta-áhugamanna í landinu heldur áfram
Jörð 185