Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 52
hugsað og starfað í þessu landi, en það var þýðingar-
mikið, hvernig unnið var og harizt fyrir 100 árum.
Vér leggjum sveig á leiði Jóns Sigurðssonar. En hann
visnar. Hann er í sjálfu sér harla ófullkomin tjáning, eins
og allar slíkar tjáningar, á þakkarskuld, sem aldrei verð-
ur goldin. Og þannig visna minningarnar og verða ávaxta-
lausar, ef þær ná ekki að vökvast og nærast af vakandi
ábyrgðartilfimuhgu vor sjálfra á því, hvað vér teljum í
sjóð framtíðarinnar gegnum augnahlikið, sem er að líða.
Vér þyrftum að geta eignast allmiklu meira — ekki að-
eins á hátíðum og tyllidögum, heldur og i viðureigninni
við einfaldar kröfur hinna rúmhelgu daga — af afstöðu
skáldsins, sem kvað:
En hvar sem ég ferðast um firnindi og lönd,
ég flyt með þá von mína eina,
að hvað sem þú, föðurland, fréttir um mig,
sé frægð þinni hugnun. — Ég elskaði þig.
A Ð RÆÐUNNI LOKINNI hófst íþróttakeppnin af nýju og gekk
yfirleitt prýðilega. Þessi eru hin helztu úrslit hennar þenna
dag, en nánar verður rætt um íþróttamótið í lieild í grein, sem
von er á frá Ólafi Sveinssyni um öll íþróttamót sumarsins í októ-
ber-hefti JARÐAR:
Fyrstu verðlaun á íþróttavelli Reykjavíkur 17. Júní 1941 r
100 metra hlaup: Brandur Brynjólfsson (Víkingur): 11,5 sek.
800 m hlaup: Sigurgeir Ársælsson (Ármann): 2 mín. 4,2 sek.
5000 m hlaup: Jón Jónsson (Knattspyrnufélag Vestmannaeyja):
16 mín. 40,6 sek-
1000 m boðhlaup: Knattspyrnufélag Reykjavíkur: 2 mín. 8,3 sek. 3
Hástökk: Sigurður Norðdahl (Ármann): 1,71 m.
Langstökk: Oliver Steinn (Ármann): 6,50 m.
Kúluvarp: Gunnar Huseby (Knattspyrnufélag Reykjavikur): 14,22 m-
Kringlukast: Gunnar Huseby: 42,58 m.
Ennfremur vann í stjórnarhoðhlaupi, 5x80 m, Ármann: 49,8 sek.
T EÐUR var mjög blítt þenna dag, en sólfar ekki mikið; stund-
um svolítið rigningarhjúfur. Um kvöldið gengust forstöðuað-
iljar hátíðahaldanna fyrir almennum danssamkomum á þrem stöð-
um í borginni og fóru þær vel fram.
Heilladisir héldu vörð um þenna örlagaríka dag í sögu íslands.
194 JÖKÐ'