Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 151
legu samábyrgð þegnanna. Ef sjálfsprófun vor, í ljósi þess-
ura staðreynda, skyldi nú leiða í Ijós, að vér létum um-
komuleysingja drabbast niður í svaðið, án þess að rétta
þeim svo mikið sem litla fingurinn, þá er hætt við, að fleira
sé „rotið i ríki Dana“ — þá megum vér sannarlega gá að
oss, því hér er þó óefað um að ræða eitl af frumskilyrð-
um þess, að vera menningarþjóð.
»esa svá gótt, sem gótt kveða, öl alda sonum»
^ÆMILEGA siðaðir menn geta rökrætt spurninguna um,
hvort lialda eigi til streitu kröfunni um algert bind-
úidi á áfenga drykki eða krefjast þess eins, að aldrei sé
drukkið fastar en svo, að heilbrigð skynsemi og lítt brjál-
uð háttvísi hafi undirtökin á athöfnum neytendanna. Aft-
ur á móti er enginn —■ jafnvel ekki hlutliafar i brennivíns-
eða ölgerðarfyrirtækjum — sem leyfir sér að mæla of-
^rykkjunni bót. Allir vitibornir, siðmenntaðir menn líta á
°fdrykkjumanninn svipuðum augum og hættulegan sjúk-
bng og viðurkenna, að tiltölulega almenn ofdrykkja er
Kíóðarböl og háskaleg allri menningu. Hvar stöndum vér
Elendingar í þessum efnum? Enda þótt talnaraðir séu þurr-
ai' aflestrar, get ég ekki stillt mig um að nefna hér ör-
laar tölur, máli mínu til skýringar. Samkvæmt upplýsing-
Um götulögreglunnar i Reykjavik voru karlar og konur sett
1 varðhald af lögreglunni i Reykjavik vegna ölvunar, frá
aramótum 1941 til Maíloka, sem hér segir:
I Janúar ...... 180
- Febrúar .... 149
- Mars ........ 246
- Apríl ....... 355
- Maí ......... 364
Samtals 129 b
Hétt er að benda á í þessu sambandi, að eðlileg afleiðing
abnennrar vitneskju um, að lögreglan tæki ölóða menn til
uæturgeymslu, er að sjálfsögðu sú, að dryklcjuskapur eykst
Jörð 293