Jörð - 17.06.1941, Blaðsíða 154
mætti finna einhverja skjmsamlega afsökun, ef ríkisstjórn-
in segði við fólkið: „Ef þið drekkið áfengi, þá gerið það
eins og siðaðir menn. Okkur er ljóst, að þið getið verið
án áfengis, og þessvegna leggjum við þungan skatt á ykk-
ur í hvert skipti, sem þið neylið þess. Ef1 þið drekkið ykk-
ur óð, þá verðið þið sjálfum ykkur og fslandi til skaða og
skanunar, og á þessum tímum höfum við, alveg sérstak-
lega, engin ráð á að verða okkur til skaða og skammar.
Þessvegna látum við fangelsa ykkur og fjársekta, ef út af
er brugðið. Þessvegna réttum við ofdrykkjumanninum
höndina, læknum sjúkdóm lians í góðum heilsuhælum og
komum honum aftur á réttan kjöl, svo hann geti orðið góð-
ur og hamingjusamur þegn á ný.“
Það væri að vísu ekki ríkisstjórn bindindismanna, seni
þannig mælti, en allt um það, gæti það verið ríkisstjórn i
sæmilega siðuðu þjóðfélagi.
Af aðgerðum ríkisvaldsins nú verður þetta ráðið: „ís-
lendingar! Ykkur er í bili séð fyrir víni og hrenndum
drykkjum, og ekki vonlaust um ljúffengt öl fvrir unglinga
og erfiðismenn, eftir að gestirnir eru farnir heim. Ef þið
eruð ekki rólfærir á götum Reykjavikur, þá verður ykkur
stungið inn, yfir nóttina, meðan plássið endist í steininum;
en ef þið viljið æra ykkur óáreittir, þá getið þið verið
heima hjá aðstandendum ykkar, og á Þingvöllum er ein-
staklega viðkunnanlegt fyrir ykkur, því þar er ekkert tugt-
hús. Við verðum að sjá ykkur fyrir nógu áfengi, ef mögu-
legt er, því án gróðans af sprúttsölu getum við ekki haldið
uppi menningarstarfsemi í landinu. Þið drekkið náttúr-
lega á eigin áliættu. Ef ykkur þóknast að drekka ykkur
niður í svaðið, þá gerið þið svo vel og liggið okkar vegna.
Ef ykkur þóknast að labba í höfnina eða slcrúfa frá gas-
inu, þegar lífsþróttur ykkar er brostinn, þá verði ykkar
vilji — við skulum koma ykkur í moldina, ef ekki verða
aðrir til þess. Gerið þið svo vel.“
Það er auðsætt mál, að þar sem „illu korni er til sáit,
mun illt af gróa“, og meðan þing og ríkisstjórn eru jafn
forsjál og verið hefir hingað til um öflun áfengra drvkkja
296 jöbð