Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 30
voru meira að segja gróflega prunknir yfir þvi, sem haft var
eftir einhverjum setuliðsmanni, að kalt væri landið en kald-
ara þó fólkið. Og það var jafnvel opinherlega talað um, að
nú væri um að gera að vera einbeitt þjóð og einangra það
kvenfólk, sem ekki gæti séð hermennina í friði, hæði vegna
virðingar okkar, aukinnar sjúkdómshættu og aukinnar
árekstrarhættu. — Loflkuldiim hefir haldizt þelta svipað í
sumar, en kvenfólkið var, sem kunnugt er, ekki lengi að
þiðna, og almenningsálitið líka, að því er virðist. Að minnsta
kosti hefir það ekki rumskað, þótt rétt nýlega hafi verið
opinherlega sagt, að hið stimamýksta kvenfólk myndi þeg-
ar skipta nokkrum hundruðum, — en „nokkur hundruð“
cr i þessu efni, liér í fámenninu, alveg ískyggilega liá hlut-
fallstala. En þó yppta nú öxlum í ráðaleysi eða dáðleysi
ýmsir þeir, sem áður vildu eitthvað aðhafast, en aðrir
skemmta sér yfir meira eða minna óhrjálegum kímnisög-
um um aumingja, sem álpast liafa út í vesalmennskuna.
Það er hér, eins og því miður hefir þótt heldur oft við
brenna með okkur íslendingum, að blóðnæturnar eru bráð-
astar. Nú, eftir fjögurra mánaða hernám er loksins lcom-
ið svo langt, að bæjarstjórn samþykkti heimild til handa
lögreglustjóra, að herða á eftirliti með ferðum manna —
þ. e. a. s. lcvenna — í skip á höfninni á næturþeli, og heim-
ild til þess að herða á eflirliti með unglingum innan 16 ára.
Yið erum ekki um allt jafn skeleggir, íslendingar. Þegar
danska lindin þvarr, voru tafarlaust gefin út hnáðabirgða-
!ög til verndar íslenzku neftóbaki. Þetta var sjálfsagt rétt
og gott — ég ætti að kunna að meta það, gamall neftóbaks-
maðurinn. — En ennþá eru engin bráðahirgðalög sett, ekki
einu sinni heimild gefin til þess, að foreldrar eða forráða-
rnenn geti í þessum efnum tekið i taumana hjá hörnum sín-
um eða skjólstæðingum, sem í vitleysu eru að eyðileggja
sig og mannorð sitt, séu þau aðeins 16 ára.
Hér er nú þörf ýmissa, annars óvenjulegra, aðgerða, þv’
að nú eru engir venjulegir tímar. Og þess vegna er það líka
hart, eins og sakir standa, að foreldri geti ekki fengið að-
stoð yfirvalda, lil þess að bjarga dætrum sínum, sem ann-
332 jöbð