Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 34
einn, að því er Ml)l. hermir s. 1. fimmtudag, að uppi í Bisk-
upstungum rann bíll á hest, svo að húizt var við, að þyrfti
að skjóta hann.
ÞAÐ hefir einmitt undarlega lítið verið rætt og ritað um
þau viðhorf, sem skapazt liafa innbyrðis við þetta lier-
nám, — ekki sízt þegar litið er til þess, hve fjölménnt er setu-
liðið samanhorið við fjölda landsmanna, — eins og eg hefi
hér áður drepið á, — og hvernig þau viðhorf geta eðlilega
orðið æ torveldari eftir því, sem hernámið kynni að eiga
sér lengri aldur. Þetla gæti virzt okkur til kjarks- eða kæru-
levsis um að ræða þessi vandamál, til hirðuleysis um að
nota þannig okkur lil styrktar og uppbyggingar það mál-
frelsi, sem við erum fullvissaðir um, að við séum aðnjót-
andi. En væri um annað livort að ræða, kjark- eða kæru-
levsi, þá myndi það, ásamt kvenfólksvastrinu utan í her-
mönnunum og vínsmyglinu í þá, ekki verða til þess að
auka virðingu annarra á okkur. Að vísu vil ég ekki halda,
að þetta sé beinlínis orsökin, heldur liitt, að við erum
ákaflega óvanir því að ræða mannfélagsmál (social sci-
ence og sérstaklega þá grein þeirra, sem á ensku er nefnd-
ur moral science (siðfræðisvísindi)). Ég trúi þessu,
þrátt fyrir það, að ég veit líka, að sá draugur gengur
um staflaust manna á milli, að ekki megi ræða ýms
viðfangsefni fyrir Bretum, og þá sérstaklega ekki við-
horf kvenfólksins til setuliðsins, og áhrif þess á almenn-
ingsálilið liér. En eins og ég liefi áður sagt, dettur mer
ekki i hug, að um þetta geti verið að ræða .... að við
mættum ekki sjálfir ráðstafa okkar vanmetakindum, hafi
þær ekki orðið berar að fjandskap við setuliðið, sem lík-
lega væri hæpið að telja í þessum málum. En væri nokkur
fótur fyrir þessu, þá ættum við að segja hreinskilnislega
og liispurslaust, að hér væri þá á ferðinni það þjóðfélags-
legt vandamál, sem við treystum ekki, að herfræðinga1'
hafi nein sérstök skilyrði til að ráða fram úr, og sízt færai'1
um en við sjálfir, þótt fákunnandi séum. Og fara þess þa
á leit, heldur en sælta okkur við enga úrkosti, að til skrafs
336 JÖRP