Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 35
og ráðagerða í mannfélagsmálum, sem sérstakur vandi
væri á, væri hingað sendur einhver dugandi mannfélags-
fræðingur, sem treysta mætli, að sem bezt vit og skilning
hefði á þeim vanda í mannfélagsmálum, sem ekki hefði
við hendur hundizt með hernáminu, mann t. d. á horð við
prófessor Garr-Saunders, svo að ekki sé ráðizt á garðinn
þar sem hann er lægstur — er starfaði hér í samráði við
þá, sem við treystum til þess að sjá gleggst í þessum efn-
um.
EN, SEM SAGT, ég trúi því ekki að neinn þröskuldur sé
þarna i vegi frá Breta hálfu, sem þykir það hrós hezt
um sig, að þeir leyfi blöðum sínum miskunnarlausa gagn-
rýni á stjórnar- og jafnvel lierstjórnar-aðgerðir. Það myndi
lika verða litið svo á, að slíkt færi mjög í bága við yfirlýs-
ingu þeirra, i sambandi við hernámið, um athafnafrelsi okk-
ar, og ég álít ekki rétt að gera þeim neinar getsakir um
þetta, lieldur híða rólegir þess, sem á daginn kemur.
AÐ LEGGJA okkur slíkan þröskuld í veg yrði beim líka
ofraun. Bretar berjast hér ekki fyrir lífi sínu ennþá,
en þeir herjast raunverulega fyrir því, sem góðir drengir
telja engu síður verðmætt; fyrir orðstír sínum í skiptum
sínum við svo litla þjóð, að hún er þrjátíu sinnum minni
en hin litla samhandsþjóð okkar, sem hernumin var rétt-
úm mánuði á undan okkur. Það myndi verða iitið til slíks
i öllum lýðræðis-löndum, og fyrst og fremst fyrir vestan
haf, i Canada og Bandaríkjunum, þar sem tugþúsundir ís-
lendinga hafa borið menningu feðrajarðar sinnar svo fagr-
vott, sem á verður kosið. Engilsaxneskur rithöfundur,
sein liér ferðaðist, gaf enskumælandi mönnum það ráð, að
fai'a að öllum íslendingum eins og þeir væru sjentlemenn.
°g England ætti að húast við því, að hver óbreyttur liðs-
niaður sem foringi gerði skyldu sina hér á þann liátt, að
fara svipað þessu ráði að okkur að fyrra bragði; dæma
heildina eftir því bezta, hversu margar vanmetakindur sem
þeim finnst við eiga, svo að við megum í öllu öðru en hern-
Jörð 337