Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 39
Bjarni Snæbjörnsson læknir og alþingismaður:
SAMKVÆMT BEIÐNI }Tðar, hr. ritstjóri, vil ég gjarn-
an verða við því að skýra frá mínum skoðunum í
þessu viðkvæma vandamáli, sem nú er áhyggjuefni fjöl-
margra liugsandi manna meðal vor; en ég bið yður og
aðra lesendur tímaritsins velvirðingar á því, hvað svar
mitt er ónógt, því að ég liefi hvorki haft tíma né tæki-
færi til að kynna mér þetta mál sem skyldi og ég hefði
talið æskilegt, áður en ég legði þar orð í belg.
1. Siðferðisástandi kvenna, og ekki síður karla, liefir
að mínu áliti verið mjög svo ábótavant undanfarna ára-
tugi a. m. k. Hefir mér virzt liggja nærri að setja það
í samband við ýms miður heppileg „sexuel“ rit, sem út
hafa komið á erlendum málum og sum verið þýdd á ís-
lenzku. Unglingar liafa sökkt sér niður i lestur þessara
rita og gleypt í sig gagnrýnislaust ]iað, sem þessi rit liafa
að bjóða, því að fræðslu í þessum málum hafa þeir nær
undantekningarlaust ekki getað fengið annarsstaðar nema
þá ef til vill frá þeim, sem hafa verið svo gerðir, að þeir
liafa talið sér það til gildis, að geta stært sig af sönnum
eða upplognum ástarævintýrum og þá jafnaðarlega gert
eins mikið úr þessum ævintýrum sínum og föng voru
á. Það skal játað, að það er erfitt og vandasamt verk,
að fræða unglinga, svo vel fari, um þessi mál, skyldur
þeirra við væntanlega afkomendur og þjóðfélagið í heild.
Að minum dómi er þetta einungis hægt með náinni sam-
vinnu kennara og foreldra, en þá samvinnu hefir skort
mjög svo tilfinnanlega, þar sem ég þekki til. Sömuleiðis
virðist manni ýmsar bókmenntir síðari tíma, þýddar
sögur og frumsamdar, hafa gert sitt til að koma meiri
og minni losarabrag á gagnrýni manna í þessum efn-
um.
Að siðferðisástandið hafi breytzt til hins verra við komu
setuliðsins er vafalaust, sérstaklega hjá unglingum, sem
ekki hafa haft neitt svipað áður að segja af jafn nær-
göngulum og frekum aðdáendum og nú.
Jörð 341