Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 80
steinþagnaði allt í einu, ósköp vand-
ræðaleg, og fór að fitla við blómin i
glugganum.
„Jú, ég skil,“ sagði ég, „það er alveg
sjálfsagt, að reyna að hjálpa þér. Þú
byrjar undir eins í kvöld. Fyrst hreins-
ar þú andlitið vel með coldcremi og
færð þér síðan andlitsbað. Þú lætur beitt
vatn i þvottaskál, tekur handklæði yfir
höfuðið, til þess að varna gufunni að
rjúka burtu, og grúfir þig svo yfir skál-
ina 3—5 mín.; auðvitað má vatnið ekki
vera svo beitt, að þú brennir þig. Svo
hitar þú lítið glas með möndlu- eða olí-
venolíu niðri í lieitu vatni, tekur þrjá
7 cm. In-eiða renninga af tvöföldu gaze
og vætir þá í olíunni, breiðir liandklæð-
ið á koddann þinn og liallar þér út af.
Fyrsta renninginn lætur þú á hökuna og
niðurandlitið, annan á nefið og kinnarn-
ar og þann þriðja á ennið. Svo liggur
þú róleg í 10 mínútur, því að það er
um að gera, að olían hafi tíma til að
verka á svitaholurnar. Eftir 10 mínútur
vætir þú renningana aftur í olíunni, ligg-
ur aftur í 10 mín. og vætir þá svo í
þriðja sinn og liggur enn 10 mín. Nú
þvær þú olíuna vel af með bómull vættri
í andlitsvatni (Skin Tonic) og ber og
klappar húðina vandlega með saman-
berpandi (astringerend) andlitsvatni, til
þess að fá svitaholurnar til að loka sér
aftur.
Ef þú svo endurtekur þessa meðferð
eftir 3—4 daga og notar gott, feitt crem
á kvöldin, fullvissa ég þig um, að eftir
Frh. á bls. 384.
382