Jörð - 01.10.1941, Blaðsíða 107
frá Kirkjubæ á Síðu hafi heimsótt bræður siua í Veri.
Ábótaleiði er þar í kirkjugarði með merkilegum steini
yfir og fróðir menn telja, að sjá megi leifar af garði í
kringum bæinn, sem bendi til, að klaustrið bafi verið vig^-
girt. Á Þykkvabæ er kirkja sveitarinnar og hún eigi stór,
enda mannfá sóknin. En henni er svo vel við lialdið, að
ég minnist ekki að hafa séð það jafnvel gert annars stað-
ar til sveita. Er kirkjan þó gömul.
Eftir kvöldverðinn var gengið til hvíldar: Einar á
Klaustrinu, en ég hjá Jóni Gíslasyni í Norðurhjáleigu, og
var sofið fast og vel á báðum stöðunum. Um morguninn
var farið fram að sjó, sem er um 10 km. vegur frá bæn-
um. Komið var í vitann á Stáfshamri — sem er ranglega
nefndur á Alviðruhömrum; — og í skipbrotsmannahæl-
ið, sem er þar hjá. Er þar góður útbúnaður til að veita:
straudmönnum nauðsynlega aðhlynningu, áður en þeir
ná til bæja. Þyrftu fleiri slík hæli að vera í þeim Skafta-.
fellssýslum.
Voru viðtökur í ÁJftaverinu hinar alúðlegustu, svo að-
öllum þótti þar gott að koma, en veður liefði getað ver-
ið betra. Fjallasýn var sama og engin, en það er liún, sem
er mesta prýði sveitarinnar, þegar sést vestan frá Hjör-
leifshöfða og austur að Öræfajökli. Sjálft er Álftaverið
lika Iiarla fagurt, þar sem bæirnir eru 12 eða 13, í kring-
um græna engjalægð. Fólkið lieldur fast við byggðina sínaJ
Og enda þótt Katla virðist ógna henni meir og meir, þá
er, þegar á allt er litið, ekki hættulegra að eiga heimá
þar heldur en í héruðum „menningarlandanna“, þar sem
styrjaldirnar tortima lífinu.
J Ú VAR þriðjudagur 2(5. Ágúst, og samkvæmt áætlun, er:
' samin var um morguninn, var ætlunin að gista i Vík
uæstu nótt, e'n skoða Hjörleifshöfða i leiðinni. Frú Hildur
útbjó nesti, því gestrisni er nú niður lögð í Höfðanum,
þar sem hann er í eyði. Jón Brynjólfsson ætlar að fylgja
okkur í Höfðann; hann er þar gamalkunnugur; hefir
stundað þar fuglaveiði í tugi ára. Þó að nú séu 30 ár síð-
jörð 409