Jörð - 01.11.1941, Blaðsíða 61
ast Kristjánssand, syðst í Xoregi, en Odderöye-virki tók
á móti með tilstyrk norskra smáherskipa. Tvisvar voru
Þjóðverjarnir liraktir á hurt. Sjálfir viðurkenndu þeir
missi beitiskipsins Karlsruhe. Hjálparbeitiskipinu Seattle
var hleypt brennandi upp í fjöru. Þjóðverjarnir gáfust
upp við þessa tilraun.
Annarsstaðar gekk árásarliðinu betur, enda liöfðu þeir
stuðning af næturdimmu og þoku.* Björgvin féll eftir
stntta viðureign. Alta þýzkum herskipum tókst að sleppa
í myrkrinu inn á Þrándheimsfjörð, fram iijá Agðanes-
virki, en inni á firðinum lá skip fullt af ólögðum tund-
urduflum. Fyrirskipanir til skipsins töfðust á leiðinni.
Þrándheimur var á valdi óvinarins ld. 8 um morgun hins
9. Apríl.
Níu þýzkir- tundurspillar brunuðu inn Vestfjörðinn, á-
leiðis til Narvikur. Strandvarnarskipið Eidsvold réðist út
í fjarðarmynnið til orustu við flotann, en varð fyrir skoti
í skotfærageymsluna og sprakk í loft upp. A Narvíkur-
höfn lá annað strandvarnarskip, Norge, og lók á móti
árásarflotanum, en var sökkt eftir að hafa skemmt tvö
af skipum árásarliðsins. Setuliðssljórinn í Narvík neitaði
að herjast. Kl. 5 um morguninn var Narvík á valdi ó-
vinanna.
Um sama lejdi var þýzku herflutningaskipi — væntan-
lega á leið til Álasunds — sökkt norðanvert við Sogn.
Og utan við Trömsö var tveimur þýzkum herskipum sökkt
og árásinni bægt frá.
Um 5-levtið, þriðjudagsmorguninn 9. Apríl, réðist þýzki
flotinn á Horten-flotalægi við Oslóarfjörð, og setti þar
lið á land, eftir harða viðureign. Á liöfninni lágu strand-
varnarskipið Tordenskiöld, tundurduflaskipið Olav Trygva-
son og tveir tundurduflaslæðarar. Tordenskiold var
skipaður nýliðum og ekki vígfær. Fyrst var sökkt tveim-
ur tundurskeytabátum fyrir Þjóðverjum, en margir skip-
verja komust á land. Þá sökkti Olav Trygvason tundur-
* og 5. herdeild. — Ritstj.
JÖRÐ
495