Jörð - 01.11.1941, Blaðsíða 71
6. Handteknir menn og dæmdir, fyrir stjórnmála og
ófriðar sakir o. þ. h., skyldu látnir lausir.
Þjóðverjar töldu sig' „að sjálfsögðu“ ganga að þessu —
með hinum og þessum fvrirvörum. Eftir það töldu þeir,
að konunginum væri vikið úr völdum að fullu og öllu
með tveim-þriðju lilutum atkvæða Stórþingsins. En er
Þjóðverjarnir skiptu enn um mann í ríkisráðinu, og settu
nýumventan Nazista inn i það, var þingmönnum loks nóg
boðið. Öllum samningaumleitunum var þar með slitið.
ÁUM DÖGUM SEINNA flutti Terboven landstjóri
útvarpsræðu og tilkynnti útnefningu þrettán „stjórn-
arfulltrúa“. Voru þeir flestir Nazistar eða því sem næst,
en fæstir hefðu komið lil greina til slíkra embætta að
öllu almennilegu. Samt var hverjum þeirra um sig falið
einræðisvaíd; hins vegar mynduðu þeir ekki neitt sam-
fellt ráðuneyti, en eru fulltrúar þýzka landstjórans, hver
á sínu sviði. Quisling er ekki meðal fulltrúa þessara, held-
ur „aðeins“ „foringi“ norskra Nazista.
í ræðu sinni tók Terboven sérstaklega fram eftirfar-
andi reglur, er framvegis hæri að Iilita:
„1. Konungdæmið er afnumið í Noregi.
2. Nygárdsvold-stjórnin er felld úr gildi.
3. Sérliver verknaður eða afstaða, ‘sem ekki tekur
fyllsta tillit til þessara staðrevnda, er hannað.
4. Stjórnarnefndin er afnúmin.
5. Samkvæmt því valdi, sem foringinn hefir falið mér,
liefi ég útnefnt stjórnarfulltrúa, sem frá deginum í
dag hafa á hendi alla stjórn i landinu.
6. Allir eldri stjórnmálaflokkar eru liér með úr sög-
unni. Nánari fyrírmæli um það verða hirt seinna.
7. Nýjum flokkamyndunum með stjórmnálalegu mark-
miði af hvaða tagi, sem er, verður ekki eirt.“
Þá var norska þjóðin komin undir stjórn Nazistaflokks-
ins, sem við síðustu kosningarnar hafði fengið 2,7% al-
kvæða. Fyrsta verk þeirra var að leggja undir sig öll
þau áróðurstæki, sem komizt varð yfir í fljótu Ijragði.
Jörð 505