Jörð - 01.11.1941, Blaðsíða 75
Skemmdarverk tóku nú að verða áberandi á símalín-
um og öðrum raflögnum þýzka hersins, einkum í Vestur-
landinu. í sambandi við það voru þungar sektir lagð-
ar á Þrándheim, Björg\’in, Stavangur, Rogaland og Vest-
ur-Uppland.
Öll héruð landsins og allar stéttir liafa tekið þátt í þess-
ari þveru andstöðu. Verkamannasambandið fékk lcyfi til
að lifa með því móti, að auðsveipari menn voru settir
3ffir það, en það tók fljótlega að ganga á afturfótunum
af nýju. 27. Nóvemlier var svo um mælt í ritstjórnargrein
í „Fritt Folk“, að „hvaða félagakerfi, sem kann að reyn-
ast oss Þrándur í Götu, livort lieldur er verkalýðssam-
bandið eða annað, verður að vera við þvi búið, að því
verði útrýmt!“*) Ekki hefir Nazistunum gengið betur með-
al kaupsýslumannanna, sbr. „Fritt Folk“ 9. Des. 1940:
„Allir vita, að liin þverúðarfulla andstaða á sina heztu
stuðningsmenn meðal helztu manna viðskiptalífsins og
iðnaðarins.“ Og enn fremur í sömu grein: „Það er varla
sá umferðasali í þessu landi, sem þori að sýna sig með
„National-Samling“-merkið utan á sér.“
Stjórn norska læknafélagsins felldi j)að með 35 atkv.
gegn 2, að samþýða félagið Nazistaaðferðum. Á svipað-
an hátt höfnuðu félagasambönd tannlækna, hjúkrunar-
kvenna og blaðamanna samvinnu við Nazista. Bændastétt-
in hefir e. t. v. revnst Nazistum einna tilleiðanlegust til
samvinnu, enda hafa þeir með kenningum sínum gert
sér sérstaklega dátt við hana. Þó hafnaði stærsti l'élags-
skapur þeirra samvinnu við Nazista á landsþingi sínu
i Osló 16. Nóvember, með 80 atkv. gegn 35. I Desember
ásakaði „Frilt Folk“ skólastjóra landsins um að spilla
fyrir liinni nýju skipun og dylgjaði um, að þeir hefðu gott
af „framlengdu jólafríi við heilsusamlega líkamlega á-
reynslu“. 12. Desember lögðu allir bæstaréttardómararnir
niður embætti. Ástæðan var opinber yfirlýsing þess efnis,
*) Sbr. aftökur og aðra har'ða dóma, er gengið hafa yfir leið-
toga þess, ekki alls fyrir löngu. — Ritstj.
Jörð 509